föstudagur, mars 11, 2005

Föstudagskvöld og annar í afvötnun

Þegar ég ruddist inn um dyrnar heima hjá mér á Dalgas eftir tvo kalda á fredagsbarnum voru Sillan mín og Guðnýin búnar að breyta herberginu mínu. Mjög kósý. Gaman þegar manni er komið svona á óvart. Fékk svo lista yfir það sem ég átti að kaupa í IKEA til að gera það ennþá vistlegra. Gott að búa með arkitektanema. Sérstaklega þegar maður er jafn framtakslaus og ég.

Annars er þetta önnur vikan í afvötnun. Og ég er farin að pæla hvort þetta sé nú virkilega hollt. Það hlýtur samt að vera.

Horfði á Dís í kvöld og fékk netta heimþrá. Erfitt þegar ég er nýkomin heim með fullt af ljósritum af meðmælabréfum þar sem ég er að sækja um vinnur hérna í Danmörkinni fyrir sumarið. Langar til Reykjavíkur allt í einu. Mér þykir vænt um Reykjavík. Hún tók svo vel á móti mér eftir að ég flutti frá Húsavík. Veit af Arnari og Huldu á djamminu núna... Þarna í Reykjavík. Mig langar að vera með. Halló.

Fann sjálfa mig mikið í Dís. Sérstaklega þar sem hún sat í þættinum þarna blindfull. Talandi um sitt eigið líf. Blúsuð. Minnti mig aðeins á sumarið þar sem ég kom heim frá New York. Skráði mig í lífffæði í háskólanum. Var að vinna á Sunnuhlíð og á Nasa.Fullkomni kærastinn ekki að gera sig. Bjó í herbergi í Fellsmúlanum og lifði á bollasúpum þar sem ég hafði ekki eldavél. Átti kort í World Class (sem var hvort sem er við hliðina) svo ég gæti farið í sturtu (neibb, einmitt. Hafði heldur ekki sturtu ;) ). Sérstakur tími. Droppaði líffræðinni og stakk af í höjskole í Dk.. sem gerði það að verkum að ég endaði hér.

Núna bý ég þó í íbúð með sturtu og eldavél. Hef líka þurrkara, þvottavél og meira að segja uppþvottavél. Byrjuð í háksólanámi og ætti að vera á beinu brautinni. Vitandi hvað ég er að gera við lífið mitt. Jú læknisfræðin en málið en hvað allt annað varðar..það er seinni tíma vandamál. Vandamál og ekki vandamál. Smá tilvistarkreppa samt.

Annars mæli ég með nýja diskinum hennar Emiliönu Torrini. Kertljósum úti í glugga og dvd í tölvunni. Kveikt á msn. Chillinföstudagskvöld beint í æð.

posted by xxx @ 23:42