fimmtudagur, nóvember 18, 2004

Íslandsferð

Skellti mér á medicinerrevyen (læknaleikrit) í gærkvöldi. Hittumst 7 úr mínum bekk og borðuðum saman áður. Ég, Kjetil og Lena töfruðum fram nautasteik með berniese og raðuvínsflöskur. Hlupum svo út í tívolí í hellirigningu til að ná revyen. Mættum á síðustu stundu. Að þessu sinni skildi ég að mestu hvað fram fór á sviðinu. Enda orðin veraldarvön hérna í Danmörkinni, bæði í dönskukunnáttunni og læknahúmornum sem er svartur á köflum. Gat því hlegið með öllum dönunum án þess að kreista á mér hláturkirtlana. Þurfti virkilega að mjólka þá á síðasta ári.
Hugsa mér að skella mér á tónleika í ridehuset hérna á Aarhus i kvöld með íslensku prófadjöflunum og taka lestina í fyrramálið til Köben. Hitta Hildu Rósina þar og slaðra við hana þangað til ég fer í flug á Kastrup kl 21:30.
Nú og þá verð ég á Íslandi annað kvöld. Ætla mér að eyða næstu 9 dögum í borg óttans. Mikið hef ég saknað hennar.

posted by xxx @ 14:18