mánudagur, nóvember 29, 2004

Vikurfrí í 101

Komin heim í heiðu Aarhus eftir dvölina á klakanum... sem í vetur reynist vera KLAKI. Djö**** var kalt. En þannig á það að vera. Skellti á mig prjónahúfunni, ullarvettlingunum og trefli. Fyrri helgina notaði ég með litlu fjölskyldunni minni; pabba og Gumma. Á þeim tveimur dögum náðum við að gera ótrúlega marga hluti. Þjóðminjasafnið, kaffihús, bíó, tommaborgarar, fjölskylduboð hjá Jöku og Dedda og verslunarferð í Smáralindina. Restina af vikunni notaði ég í þessa ógeðslega frábæru vini sem ég á. Bjó á kaffihúsum. Í enda vikunnar gat ég tínt af mér vettlingana, húfurnar og treflana. Manni verður svo heitt þegar maður finnur hvað maður á góða að. Takk allir. Tók eitt djamm og það á föstudeginum (held að það séu alveg 3 ár síðan ég varð svona full í Reykjavíkinni síðast...stálguðný er þar af leiðandi ekki enn farin að láta sjá sig, sem þið getið reiknað út). Byrjaði á því að skella mér á Idolkvöld hjá Úllu með MH-gellunum->á Pravda af öllum stöðum en þar ætlaði ég að hitta finninn minn hann G sem beilaði, en er fyrirgefið->flúði því út af þeim stað og fór á Hressingarskálann þar sem ég tók á mig gervi verkfræðinema til þess að ná í ódýrari bjór handa okkur Arnari. Þar kynntist ég nýjum vinum, Örnu og Hjálmari sem allt í einu sátu við borðið okkar og við niðursokkin í djúpar og innihaldsmiklar samræður (hvað annað?) ->dró skarann með mér á 22 þar sem ég dansaði í mig hálsrýg og bakverki->fyrir utan 11 hitti ég svo húsvíkingana Magga Halldórs og Ingó, endaði djammið með þeim á Kofa Tómasar frænda (held svei mér þá að ég hafi verið á leiðinni á Sólon þegar ég labbaði inn í þá.....ætli mér hafi verið bjargað frá grimmum örlögum??). Þarna var ég orðin ansi drukkin enda voru timburmennirnir á laugardeginum eftir því. Arnar takk fyrir frábært kvöld... og allir hinir líka sem ég hitti á þessu maraþondjammi mínu. Ber mikla virðingu fyrir fólki sem heldur í við mig þegar ég er í þessum ham.
Ég flaug með Icelandexpress hingað til baunalands. Kynntist gaur í flugvelinni sem var víst með mér í MH. Það var ágætt og stytti flugið heilmikið. Hef gaman af fólki sem kann að tala. ... já fríið mitt á Íslandi var því gott í alla staði og ég kom skælbrosandi til baka. Takk fólk.

posted by xxx @ 16:04