föstudagur, desember 31, 2004

Ársuppgjör og bjartari framtíð

Árið 2004 hefur verið einstaklega rólegt á yfirborðinu en hefur hins vegar kostað sjálfa mig heilmikil innri átök og togstreitu. Hvað stendur hæst?

-Fyrri hluti ársins einkenndist af miklum sjálfsaga inni á lessölum Århus universitet
-Í júní fékk ég að vita að ég hafði komist í gegnum 1.ársprófin....góð upplifun
-Sumarið var rólegt en ég eyddi því með náttúrunni og einstaka lifandi manneskjum í Þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum.
-Í júlí kvaddi ég Kárahnjúkana með stæl og varð vitni að flóði sem lokaði mig næstum inni.
-Í ágúst flutti ég niður í miðbæ Árósa inni í glæsilega huggulega íbúð með Guðnýju og Sillu...dúllunum mínum.
-Ágúst-nóvember reyndust rólegir í skólanum og einkenndust af miklu letilífi og rólegheitum á virkum dögum en villtu djammi um helgar. Vann upp djammleysið sl 2 ára, einum of vel fannst mér stundum.
- Á siðari hluta ársins slitnaði upp úr sambandinu mínu.
-Í nóvember tók ég mér vikufrí og eyddi því í Reykjavík. Fékk gistingu hjá Arnari og Huldu. Eyddi fríinu að mestu á kaffihúsum borgarinnar......æðislegt frí.
-Í desember byrjaði ég í klinik á Viborg Centralsygehus sem gaf mér aðeins aðra innsýn í námið mitt.

Sem sagt árið fór viðburðalítið í gegn með þónokkrum persónulegrum sigrum.

Mér segir svo hugur að næsta ár eigi eftir að hafa ýmsar nýjar upplifanir í för með sér :) Skál fyrir því.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla. *Stórt faðmlag*

posted by xxx @ 22:36 

föstudagur, desember 24, 2004

Gleðileg jól :)

Mig langar að óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Takk fyrir allt það liðna. Við hittumst/heyrumst hress á nýju ári. Jólakveðja Guðný Jóna.


posted by xxx @ 17:21 

fimmtudagur, desember 23, 2004

Þorláksmessa

Í dag er Þorláksmessa. Ég er hreinlega búin að kaupa allar jólagjafir og þarf þess vegna ekki að þeytast út um allan bæ og safna að mér heilalausum hlutum til að henda ofan í jólapakkana í ár. Ákvað að gera þessi jól vel. En skrifaði samt engin jólakort. Kannski næstu jól. Rak mig illþyrmilega á það í dag að eldhúsið lyktaði EKKI af kæstri skötu. Aldrei datt mér í hug að ég ætti eftir að sakna þess óþverra. Mamma ég sakna þín. Saltfiskur var það þessa messuna.
Við Húsvíkingar komumst í fréttirnar vegna mikils snjófalls. Hér er allt ófært. Alllllt á kafi í snjó. Minnir mig á gamla daga þegar við þurftu að moka okkur leið út frá húsinu hérna á Brávöllum 9 til að komast yfir brúnna og í barnaskólann. Skrítinn tími þá. Snjór er góður þangað til maður þarf að ryðjast í honum í gegnum bæinn. Snjór er bestur þegar hann gefur manni afsökun til að ligga inni í stofu.. uppi í sófa, undir teppi með kakó. Annað hvort með kveikt á sjónvarpinu eða með góða bók fyrir framan sig. Fór á bókasafnið áðan og tók bókina "Súperflört" sem er að tröllríða íslenska samfélaginu í dag. Um að gera að tileinka sér tæknina þegar maður er orðin svona súpersingúl ... eða hvað. Kannski er það ekkert sniðugt. Langaði allavega að glugga í bókina til að sjá hvað gellan er að pæla. Furðulegt að það sé hægt að stúdera flört og læra það. .. en hvað er svo sem ekki hægt að læra?

posted by xxx @ 15:31 

þriðjudagur, desember 21, 2004

Ísland aftur

Jáms þá er ég komin á gamla frónið enn eina ferðina. Mér finnst ég bara alltaf vera á Íslandi þessa dagana. Byrjaði heimkomuna á því að skella mér á 22 og dansa mig upp að hnjám en renndi svo norður með Pétri, Simma og Stjána á laugardeginum. Komin í faðm fjölskyldunnar á Húsavík. Voða næs. Eins og mér sæmir fór ég á bókasafnið og byrgði mig upp af alls konar bókum og lesefni. Ég eeeelska að lesa... jólin hjá mér í hnotskurn. Skothnurn.

Litlu lestrarhestarnir mínir í Árósum fóru í stóra anatomiuhryllinginn í dag. Gellurnar stóðu sig held ég barasta með prýði. Hef enga trú á öðru. Eva, Magga og Guðný-TIL HAMINGJU!! Besta tilfinning í heimi. Allavega sú besta þangað til maður stígur út úr næsta prófi, fysiologiógeðinu. Ég elska skóla. Þessi tilfinning eftir mikið erfiði. Krúttípútt. Ég er svo stolt af þessum elskum. Nóg af væmni ætla að skella mér í heitt og gott bað... það er það næstbesta í heimi :)

posted by xxx @ 20:36 

fimmtudagur, desember 16, 2004

Yfirlit frá síðasta bloggi

Föstudagur: Sá "Kongekabal" með Tinnu og ætlaði mér að kíkja í stutta heimsókn til Taj. Endaði á þessu hrillilega djammi með strákunum úr bekknum og var komin heim kl 7 um morguninn. Dansaði mig upp að hnjám. Óvænt djömm rokka. En mikið rosalega var ég full.

Laugardagur: Þunn þunn þunn og aftur þunn!! Skreið fram úr rúminu kl 18 og beint í sturtu. Var mætt til Signe í jólahygge með stelpunum úr bekknum kl 20 eftir að hafa ráfað um miðbæ Aarhus í klst og spurst fyrir í tveimur búðum. Ég er svo áttavillt.

Sunnudagur: Lá í rúminu allan daginn og horfði á sjónvarp og talaði í símann. Draumadagur letningjans. Gat hins vegar ekki sofið um nóttina :(

Mánudagur: Hentist út á lestarstöð kl 5 og mætti í klinik. Flutti til Viborg.

Þriðjudagur: Klinik. Dó fyrir framan sjónvarpið kl 18

Miðvikur: Sólahringsvakt. Fékk að taka slatta af blóðprufum. Taka upp eina heila skýrslu. Gegt töff; stetoscop cordis, ingen mislyde, punktum. Stetoscop puomnalis ingen bilyde, punktum. Pupiller runde og normal lysereaktinon punktum og ny linie. Fékk slatta af hrósi frá lækninum sem ég fylgdi. Fékk þónokkra innsýn í það hvernig mórallinn er hjá útlensku læknunum sem vinna á sjúkrahúsinu í Viborg. Hékk með þremur læknum þennan dag; Einni frá Rúmeníu (gift dana), Íraka og einum frá Afganistan. Þar að auki yfirlækninum sem er danskur. Metingurinn milli útlensku læknanna var ótrúlegur. Nenni ekki að taka þátt í svoleiðis og endaði sem trúnaðarmaður tveggja þeirra ;/ Ég hef kynnst tveimur frá afganistan. Honum Golam mínum sem var með mér á hojskolen og svo forvaktinni sem eg fylgdi í dag. Báðir alveg ágætir. En þrjóskan skín í gegn og þeir hafa "ALLTAF" rétt fyrir sér.

Fimmtdagur: Læddist út af lægekonferancen kl 9 og hljóp í lestina. Flutti til Aarhus aftur. Kom við í bakaríinu og keypti mér samloku og hyggst á smá blund.

Góðan dag.

P.s. Jólagjafainnkaup í dag og niðurpakkning. Ísland á morgun.

posted by xxx @ 10:38 

fimmtudagur, desember 09, 2004

Læknir i litlu Viborg

Þá er ég farin að þrusa um gangana í Centralsygehuset i Viborg með hlustunarpípu í annari og píparann í hinni, í flaksandi læknaslopp bjargandi lifum hægri vinstri. Já, bara eins og ekkert sé!! Sjúklingarnir eiga í veðmálum um hvað ég er gömul. Finnst svo skrítið að svona lítil stelpa eins og ég sé á þönum þarna um allt innan um læknana. Halda flestir að ég sé 19. Mér finnst það gaman. Brosi út í annað og finnst ég töff. Ég er samt 22, svo það er ekkert óeðlilegt við mig. Það eina sem mér finnst undarlegt er að þegar ég var 17 komst ég inn á flesta skemmtistaði í Reykjavík en núna hefur dæmið snúist við. Þegar ég er komin yfir tvítugt heldur fólk að ég sé undir tvítugu. Hef samt lítið sem ekkert breyst. Veit ekki hvað þetta er við mig. Nóg um það, það er ágætt að sjá hvernig svona sjúkrahús fúnkerar. Og fá að fylgja eftir læknum, taka skýrslur og svona. Ég lagði mig aðeins á vaktinni í nótt ( VIÐ læknarnir megum það já) og svo pípaði píparinn minn kl 6 og ég æddi af stað í ranghvolfnum sloppnum með stírurnar í augunum.. út á gang... hitti Kristina þar.. og hljóp með henni inn á eina stofuna. Þar lá maður ... og mikið blóð. Ég stóð svo þarna og horfði á hvað fram fór. Allt í einu fann ég þrýstin í höfðinu og svitann spretta út fram á enninu..... .. "nei... ekki láta líða yfir mig, það hefur aldrei gerst og ég er sko allt of töff".. hugsaði ég. Hefði verið niðurlæging dauðans. Svo ég reyndi að líta fram hjá öllu blóðinu. Að lokum hljóp ég fram, beinustu leið inn á klósett og kúgaðist og kúgaðist. Veit ekki hvað gekk að mér. Hef hingað til þolað allan andskotann. Hefur líklega eitthvað að gera með það að vera hent nývaknaðri með tóman maga í blóðbað (en eg kem til með að líta meira blóð augum en þetta... smámál). Ég var ekki sátt með sjálfa mig. Drakk 2 vatnsglös, strunsaði inn á stofuna aftur og starði af miklum krafti á allt blóðið. Ætla sko ekki að láta einhverjar svona fáránlega litlar aðstæður buga mig. Bjargaði mér þarmeð frá svekkelsi.

Getið lesið um síðustu helgi hér.... ekki alveg í skrifustuðinu.

posted by xxx @ 16:56