Girls night out
Ja skál fyrir því enn og aftur! Það var opið í búðum til kl 12 á föstudagskvöldið svo við kíktum í búðir eftir að við vorum búin að snurfusa okkur hægri vinstri. Svo lá leiðin niður á social club. Ég dansaði mig upp að öxlum og steingleymdi að ég er nýorðin single. Svona ekta girls night out. Ein helltist að vísu úr lestinni þegar líða tók á kvöldið þar sem hún vildi vera lengur á svæðinu en við hinar enduðum kvöldið á Burger King með tilheyrandi magapínu og látum. Burger King sukkar. ... ég hef aldrei verið jafupptekin við að dansa.. hafði ekki tíma til að tala við neinn né kynnst einum einasta af þessum íslendingum sem voru á svæðinu... það fattaði ég ekki fyrr en á leiðinni heim. posted by xxx @ 22:17
föstudagur, nóvember 28, 2003
Skál fyrir því! posted by xxx @ 17:43
Ja, tøkum okkur saman og førum a hausinn i skolabokakaupum... (ø3"%/?)...... tad er alveg tad skemmtilegasta tessa dagana rett fyrir jol. HNUSS!! posted by xxx @ 12:48
fimmtudagur, nóvember 27, 2003
og bæ ðe vei! Bjórbandið er að spila hérna á morgun (Hulda!!) .. og ætli maður verði ekki að skella sér á Social club með ølþyrstum íslendingum og skvetta aðeins úr klaufunum áður en maður tekur lokasprettinn fyrir jól... (maður verður jú að halda jól með góðri samvisku). .. og hver man ekki Selfoss forðum daga. posted by xxx @ 15:39
JÆJA! Í náttbuxur... kveikja á lampanum... taka upp doðrantana... LÆRA! Burt með þig einbeitingarleysi! posted by xxx @ 15:10
miðvikudagur, nóvember 26, 2003
Ég hef alltaf verið mjög seinfattin manneskja. Ég er ekki stolt af því en ég reyni þrátt fyrir það ekki að fela það. Ég kem til dyranna eins og ég er klædd. Nú ég gerði mikla uppgötvun þegar ég var á leið heim úr strætó í dag. Eftir ógeðslega erfaða og depressing helgi.. svo ekki sé meira sagt sat ég sem sagt í mínum þungu þönkum í strætó. (Þessir þankar láta mig ekki í friði). Europapaldsen....Hovedbanegaarden........Burger King...... RUNDSTYKKER.. ....Handelhojskolen......
RUNDSTYKKER!!!.. og aftur upphrópunarmerki. Frá því að ég var lítill krakkalingur með tíkarspena hef ég átt í vandræðum með þetta orð á íslensku. Þegar ég var fjögurra ára kallaði ég þau rúmstykki... svo þegar ég varð eldri fannst mér að þetta hlytu að vera rúnstykki... svona í stíl við rúnir eða eitthvað. Í stafsetningu lærðum við aldrei neitt um rúnstykki... og ég held að ég hafi einfaldlega aldrei nokkurn tímann í lífinu þurft að skrifa þetta orð. En alltaf elti það mig eins og grár skugginn. Rúnstykki.. rúmstkykki, rúndstykki... rústykki... skrústykki... Búið að þjaka mig allt lífið sem sagt. .. og hana nú þarna sat ég í mínum dýpstu þönkum farandi yfir atburði síðustu daga aftur og aftur og aftur þega GUÐ ákvað í allt í einu að akkúrat þarna skyldi einu af mínum vandamálum verða af mér létt. Og bingo!! BINGÓ. Þarna sá ég á tæru að orðið var komið úr dönsku og ætti að vera rundstykke..við höfum svo tekið það og aðlagað það að íslenskunni... hvernig hef ég ekki hugmynd um, get verið sátt við mín rúnstykki. posted by xxx @ 15:32
sunnudagur, nóvember 23, 2003
"What a piece of work is man! How noble in reason! How infinite faculties! In form and moving how express and admirable". (William Shakespeare)
"Fólk er fífl" (Botnledja)
............hm.... eg veit ekki med ykkur en eg hallast ad tvi sidarnefnda! posted by xxx @ 20:48
föstudagur, nóvember 21, 2003
Voruð þið búin að heyra af hverju ekki er búið að gefa út frímerki
með mynd af Davíð Oddsyni ??
Því sjálfstæðismenn myndu þá ekki vita hvora hliðina ætti að sleikja!
posted by xxx @ 14:52
fimmtudagur, nóvember 20, 2003
... og hey! Ég myndi líka ræna banka til að eiga fyrir jólagjöfunum. posted by xxx @ 19:46
Fólk er snemma í jólahugleiðingum þetta árið.. tjah eins og öllur önnur ár. Mér til mikils ama sá ég að það stefndi allt í "uppsölu" á ódýrustu flugfargjöldunum norður. Svo ég pantaði eitt. Jæja þá þarf ég ekki að sitja í bíl í 6 tíma og láta mér leiðast. Ein klst í flugvél er alltaf skárri. Var samt komin með alla anga út um allt og búin að fá fullt af kannski förum.... en maður stólar ekki á kannski er það? Svo Flugfélag Íslands er málið. Miiiikið rosalega hef ég EKKERT að segja. Maður verður svo heiladauður af því að djamma ekki hverja helgi! .. og svo er talaðu um að maður virki heilann með lestri... og alkohól hafi neikvæð áhrif. Ég er svo sannarlega að sanna að svo er ekki og hana nú. posted by xxx @ 19:45
laugardagur, nóvember 15, 2003
Ég auglýsi hér með eftir fari frá Reykjavík til Akureyrar .. (jafnvel til Húsavíkur) 22. eda 23. des!!!!! Þekkir ekki einhver einhvern sem þekkir einhvern??? Og hvað með far suður 3.des???
Væri voða næs! Ætla allavega að auglýsa eftir því þangað til ég neyðist til að panta flugfar ;) Hafið augu og eyru opin! posted by xxx @ 16:53
föstudagur, nóvember 14, 2003
Mig langar að þakka Guði fyrir stigana í skólanum.... eina hreyfingin sem ég fæ ;) posted by xxx @ 18:34
miðvikudagur, nóvember 12, 2003
Ég álpaðist fyrit tilviljun niður í bæ um daginn.... og það er fandeme búið að skreyta aðalgötuna. Ekkert smá sætt. Fólk er greinilega að komast í jólaskap. Eitthvað sem fyrirfinnst engan veginn hjá mér. Efast um að ég komist í það. Þetta verða erfið jól... Langar helst ekki að hugsa um þau. En þau koma hvað sem öðru líður. Auðvitað verður gott að koma til Íslands og hitta fjölskylduna og vinina. Ætli ég skelli mér ekki á eitt stykki jólaball og svo í sveitina. Óþolandi að geta ekki hoppað yfir tímann. posted by xxx @ 19:23
sunnudagur, nóvember 09, 2003
Við hittumst í gærkvöldi:Beta, Freyr og hin Guðný og horfðum á upptöku að íslenska Idol. Ég er mjög sjálfgagnrýnin persóna... ég geri mér GREIN fyrir því að ég get ekki sungið. Ég held að fólk þurfi ekki að vera jafn sjálfgagnrýnið og ég til að gera sér grein fyrir hæfleikum sínum innan tónlistarbransans. Hins vegar er ég mjög hrifin af hugrekkinu sem fólkið sýndi. Að standa þarna rammfalkst fyrir framan Siggu Bein, Bubba og Þorvald Bjarna og ..GÓLA!! Og jafnvel mótmæla því ef það fær neikvæða gagnrýni frá dómnefndinni. Hetjur, ekkert annað!!
Freyr bakaði súkkulaðiköku og við pöntuðum pizzu. Mig grunar að ég sé á leiðinni í hollusutátak á næstunni. ... það er víst reglan fyrir jólin... jú annars hefur maður ekkert til að skemma um jólin.
Arnar er í heimsókn hjá Huldu á Spáni þessa vikuna. Mig langar að senda þeim knús! Og Arnar... það er ekki allir sem geta státað af því að eiga vin sem hefur labbað Justin Timberlake nidur á Heathrow! I love you man!!! posted by xxx @ 17:49
já Freyr ég veit að þér finnst þú æði... en þú þurftir ekki að ganga það langt að blögga það á síðuna MÍNA! En takk fyrir hjálpina ;) posted by xxx @ 00:54
laugardagur, nóvember 08, 2003
Það er gaur með mér í læknsifræðinni og hann er bara æði jiiiii.
Hann reddaði commentakerfinu!
:) posted by xxx @ 21:09
fimmtudagur, nóvember 06, 2003
Mig langar svo að þið heyrið í hljómsveitinni Kashmir. Ég veit ekki hvort lög með henni hafa verið spiluð á Íslandi, hef að minnsta kosti aldrei heyrt í þeim í útvarpinu heima. Þetta er dönsk hljómsveit sem ég kynntist þegar ég var í hojskolen. Ein af uppáhaldshljómsveitunum mínum er Travis og Kashmir minnir svolítið á þá... pínu pons. En allavega vel þess virði að hlusta á (aftur og aftur og aftur).
Ég setti þvottamet í dag, a very good thing to do. Þvoði 4 fullar vélar og setti svo 2 sinnum í þurrkarann. Aldrei tekist þetta áður. Þarf ekki að hafa áhyggjur af þvott NÆSTU tvær vikurnar ;)
Svo ég víki sögunni enn frekar að heimilistörfunu þá fór ég að versla í matinn í gær!! En endnu bedre ting at lave ;) Ég labbaði út með kronfleks og jógúrt. Og jú .. hvernig stendur á því?? Allt í einu er pasta orðið að æðum, brauð og kjöt að vöðvum og allt gult er fita..... hver sem ég fer lyktar allt af formalíni.
En þar fyrir utan fíluðum við Lena okkur sæmilega í dag; ".....kniv.....saks.................................her har jeg fundet et kar.... og en nerve... det er sgu fandeme arterie digitales palmares proprii....."
posted by xxx @ 22:21
miðvikudagur, nóvember 05, 2003
Hoppað upp í hausinn á mér posted by xxx @ 22:27
..var að koma heim úr skólanum...var að læra með sænskum vini mínum úr bekknum (veldig bra) maður kemst ekki upp úr bókunum þessa dagana.... miiiiikið að gera og inn á milli að kryfja. Ég er farin að skilja afhverju meiri hlutinn af læknum erum hálfvitar... þeir eru sneiddir öllum hæfileikum til mannlegra samskipta í náminu!! Ég skrifaði nú í umsóknina mína til skólans (jú við áttum að skrifa svona litla ritgerð um afhverju skólinn ætti að taka okkur inn á læknisfræðina) að ég ætlaði mér að verða læknir sem kynni að hafa samskipti við almúgann... og talaði á þeirra máli en ekki á einhverri óskiljanlegri latínu. Enginn hroki, bara sama level. Orðaði þetta aðeins betur.
posted by xxx @ 22:05
þriðjudagur, nóvember 04, 2003
Hulda.. þú átt ekki að skrifa á bloggið mitt!! Notaðu gestabókina eins og aðrir! Mig langar aðeins að minnast á molbúaháttin minn hérna í dk. Ég er nýkomin heim frá því að kaupa strætókort og versla jógúrt og kornfleks inn í matinn. Þegar ég kom heim áttaði ég mig á því að ég hef ekki þvegið þvott í 2 vikur sem þýðir einfaldlega það að ég er að verða búin að notta allt úr fataskápnum mínum.. allavega það sem er íveruhæft. Ég skundaði í þvottahúsið til að skella í þvottavél en haldiði ekki að það sé allt upppantað fram á fimmtudag. Ójújú. Ég verð því að sætta mig við það að vera í einhverju ekki mjög fallegu næstu 2 daga. En ég pantaði líka 3 þvottavélar á fimmtudagskvöldið........... óhuggulegt hvað ég er utan við mig. posted by xxx @ 18:09
Hurru elskan, er alveg ad verda búin ad massa tetta, vantar bara herslumuninn!!!
Kommentakerfid eda shout out ....kemur vonandi á morgun ! :)
Hulda!!! posted by xxx @ 02:10
mánudagur, nóvember 03, 2003
rigningunni er lokid i bili. Danir hoppa upp í haus sér þegar ég segi þeim að þessa dagana sé hlýrra á Íslandi en hérna á bauninni. Afi hringdi nefnilega í mig fyrir viku síðan og sagði mér að það væru 17 gráður og steikjandi sól á fróni. Og ég held mig við það þangað til næstu fréttir berast.... set upp húfuna mína með bros á vör og fíla það í tætlur að kunna að klæða mig í útlöndum.
Í dag fékk ég að kryfja. Ég má víst ekki fara út í detailin, það er bannað. En ég og Lena stóðum sem sagt í kjallaranum í háskólanum í dag með kæmpe handlegg, tangir og skæri. Brugðum kutanum aðeins. Gaman gaman!! Verð samt að viðurkenna að þegar ég sé látna einstaklinga verð ég svolítið lítil í mér. Neyðist til að sparka í sjálfa mig og segja við mig höstugum rómi "görls gotta dú vatt görls gott dú". Bretta upp ermarnar og henda mér í það sem ég þarf að gera. Þetta er lífið.
Jæja Hulda mín, núna máttu búa til fyrir mig kommentakerfi eins fljótt og auðið er... og vertu snögg að því.
posted by xxx @ 22:38
sunnudagur, nóvember 02, 2003
Köttur með niðurgang
tad er rigning og rok a Mýrdalssandi .....
Ég er ad fara að kryfja á morgun, nettur spenningur í gangi ásamt blöndnum kvíða. Held samt að þetta verði kúl.
Ég held ad kötturinn hans Palla sé með niðurgang, ... allt bendir til þess miðað við brúnu sletturnar sem eru á eldhúsgólfinum. Vona að fleiri drullumöll dúkki ekki upp á næstu tímum. Ég er þreyttari en dauðinn svo ég ætla að fara að sofa. Erfiður dagur þrunginn miklum vonbrigðum þar sem ég náði ekki að gera allt sem ég vildi gera.... hvar læri ég smá kæruleysi?? Þyrfti virkilega á smá kennslu í því að halda. Það myndi bjarga sálarlífinu mínu að einhverju leyti. posted by xxx @ 22:09
laugardagur, nóvember 01, 2003
posted by xxx @ 22:38
Eg skellti mer i party i gær og a leiksyningu hja læknanemunum herna i Århus. Frabært leikrit.. rusinan i pylsuendanum var su ad nakinn læknanemi spratt fram a svidid og sveifladi øllu sem hann sveifladi gat... hehe ja tad var HANN! Eg var svo anægd med tessa syn mina ad eg atti ekki ord. Nu svo la leidin i bekkjarparty og alls ekki var tad slæmt. Hefdi getad farid a heljafylleri og tad okeypis. Folk lagdi heilmikid a sig til ad koma ofan i mig alls konar vodkabløndum (sem voru blandadar ad minnsta kosti fifti fifti) en .. tjah, ekki tokst mer ad finna a mer frekar en fyrri undanfarna daga ;) Tegar eg kom heim var Køtturinn hans Palla buinn ad hella koki ofan a netterinn minn og undir tølvuna. Eg var nett pirrud og bølvadi upphatt. ... miiiiiikid. Andskotans katthelviti ( og ju eg er dyravinur.. en ekki tegar eg lendi i tessum adstædum). Tjah...
Eg er buin ad fa nyjan kennara i anatomi, tessi er fyndinn, get ekki neitad tvi en eg sakna gædakennslunnar hja teim fyrri. Tessi nyji er skurdlæknir herna i Århus, hann er alltaf i gallabuxum og stigvelum og kennslan gengur ut a ad leggjast upp a kennarabordid og svefila fotunum til og fra (vid erum ad læra um fæturnar)... nju og skella nokkrum oskiljanlegum teikningum upp a tøflu. Stundum velti eg tvi fyrir mer hvort tad sem hann er ad teikna se jolaskraut. En eg gef honum sens.. spurning um ad adlaga sig adstædum, ik?
Jæja herna i sit eg i Victor Albeck bygningen og læri um nervur....
Hvar a madur ad høggva af ser hendina til ad hætta ad finna fyrir tanum??
posted by xxx @ 18:33
