föstudagur, janúar 26, 2007

Ammlisbarn

"Ég er bara 5 ára og kenna á því fæ
klukkan 7 á morgnana er mér dröslað niðr’í bæ
enginn tekur eftir því þó heyrist lítil kvein
því allir eru að vinna og eru orðnir allt of seinir.

Súrmjólk í hádeginu, Cheerios á kvöldin
mér er sagt að þegja meðan fréttatíminn er.
Súrmjólk í hádeginu, Cheerios á kvöldin
allir eru svo stressaðir en þó mest á sjálfum sér...."

Vegna lítils þroska og reynsluleysis ákvað ég ad halda mér vid 5 ára aldurinn í dag. Já og út árið. Megi komandi ár færa mér tuttugu ára reynslu..helst góða. Það væri splendid.
Tíminn líður svo hratt. Búin að eiga í krísu undanfarið, - yfir öllum þessum hraða. Fólk sem þykist vita betur hefur bent mér á að ég sé enn unglingur. 25 ár séu ekki neitt. En mér finnst þetta stór biti að kyngja. Ég veit ekki afhverju. Kannski því ég haga mér enn eins og þegar ég var 15 og lít út fyrir að vera 19 (fékk ég að heyra um daginn!). Krísa er það allavega.

Jæja ætla að fara að sofa. Smá reddingar í fyrramálið. Ætla að skrifa verkefni fyrir 9.önn á þessari önn (sem er 8.önn) og þarf að sannfæra vejlederen sem ég hef augastað á að það sé þrælgóð hugmynd. Svo kannski halda pínu ammlisdag. Brunch eftir að hafa sjarmerað vejlederinn upp úr skónum. Og út að borða á Marco polo í kvöld. Ætla ekki að halda stórt partý. Það kemur vonandi seinna, þegar fælleshuset er laust. Þarf líka að fara að henda ofan í töskur. Setja hárið í tagl og stinga stetóskópinu í vasann. Slást við sjúklinga í Álaborg.

Gnótt og drekkið einn bjór fyrir mig í dag. Það væri næs. (Það er nú einu sinni föstudagur!!)
g
P.s. Linda, til hamingju með afmælið :) ..hérna er lítil mynd af mér og þessari elsku. Þegar það var ótrúlega mikið að gera hjá okkur í vinnunni sl sumar. Haha. Þetta var í byrjun júlímánaðar og við urðum næstum því úti. Knús til þín.

posted by xxx @ 01:23 

laugardagur, janúar 20, 2007

Fiðrildi í maganum. Eiginega út af engu.

Hæ englarnir mínir. Mig langaði bara að láta ykkur vita að
ég hlakka svo til að..
þrífa íbúðina mína
raða fötunum mínum
borða hollan mat
fara út að hlaupa
horfa á sjónvarpið
vaka fram eftir
sofa lengi
fara í klippingu
kaupa föt

..og ég get ekki beðið. Furðulegt hvað maður hlakkar til þessara litlu hluta þegar tímaleysið og sjálfsvorkunnin er í hámarki. Samt nennir maður ekki að gera helminginn af þessu þegar tíminn er nægur. Rugl.

Ég hlakka líka ótrúlega mikið til febrúarmánaðar. Einhvern veginn allt að gerast þá. Mitt viðburðarsnauða líf þessa dagana mun færast nær því sem einhverjir myndu kalla viðburðarríkt líf:)

Nú fredagsbarirnir byrja aftur. Læt mig auðvitað ekki vanta þar. Já, ljúka þessu þurrkatímabili mínu. Held samt að ég muni hafa takmarkaðan tíma til að mæta á þá vegna ýmissa annara hluta. En hlýt að geta troðið þeim þarna inn í skedjúlinn einhvers staðar.

Svo er ég fara í praktík í Álaborg. Svo ég mun búa á kollegie þar alla virka daga..en koma til Árósa ef ég vil um helgar. Alltaf rútuferðir fyrir okkur læknanemana sem verða þar. Held að það verði gaman. Hef þörf fyrir tilbreytingu.

Febrúar verður líka óvenjulega íslenskur mánuður. Þorrablót íslendinga í Álaborg, Árshátíð íslenskra læknanema í Odense, djamm hjá íslenskum læknanemum á Árósum.

AMSTERDAM um miðjan febrúar. Þar ætla ég að vera í 6 daga með Huldu. Við ætlum að hittast þar,versla, skoða borgina og vera stelpur. Eiga æðislegan stelpuferð. Þarf líka mikið á því að halda núna. Hlakka svo til.

Nú ætli ég komi ekki við í Köben og heimsæki Mikkel þar sem ég verð á ferðinni hvort sem er.

Já og svo bara danska lífið mitt, æi þið vitið! Líf námsmannsins :)

Ég er alveg að tapa mér í framtíðinni. Nánustu framtíð. Auðvitað.
En fyrst þarf ég að ná andskotans prófinu sem er á mánudaginn. Er svolítið hrædd.Einbeitingin var ekki upp á sitt besta í byrjun próflestrar. Svo sem skiljanlegt. En ég nenni ómögulega að falla á því. Á eigin hugsanasnörum.Vona,vona.

Búin að bæta inn nokkrum linkum. Ari-ýmsar skemmtilegar pælingar og tónlist. Óttar-leppalúðinn í Álaborg og bekkjarfélagi úr barnaskóla.Hildur- hress og skemmtilegur sjúkraþjálfaranemi hérna í Árósum.Bumbubúinn hennar Míru og Brynja Katrín sem er dóttir Áslaugar og Benna.Sif-vinkona úr MH. tjekk it át.

Að lokum læt ég fylgja með nokkrar myndir úr jólafríinu. Heyrumst hress í næstu viku. Hvernig sem tetta fer allt saman. Ciao.










posted by xxx @ 22:03 

sunnudagur, janúar 14, 2007

Engum hollt

Ég er í svo miklu fjandans rugli tessa dagana (nei ég bølva ekki) ad ég held ad tad sé engum hollt ad lesa blogg eftir mig. Èg er allavega á lífi.

Brjálad ad gera. En svo fæ ég frí. Hvad skal gera tá? Hver vill vera memm milli 22.jan og 28.jan? Kannski ætla ég bara ad vinna. Svo verd ég brádum 25 ára. Tann 26.jan. Tá ætla ég ad djamma. Vill einhver djamma med mér?

Jájá. Bid ad heilsa og vonandi hafidi tad ótrúlega gott øllsømul ;) knúsát.

posted by xxx @ 20:52