sunnudagur, apríl 24, 2005

Tjah...

Jaso! Ekki svo mikid drifið á daga mína undanfarið og þó. Stend á haus í eðlisfræði-og efnafræðitilraunum og skýrslum. Tekur mikinn tíma finnst mér og þar að auki er ég að asnast til að deita. Tekur tíma ;) En voða gaman samt og ég tek það til baka að mér finnist leiðinlegt og asnalegt að deita (það er í það minnsta gaman þangað til maður fær kalda vatnsgusuna framan í sig... en svo langt á maður ekki að hugsa er mér sagt). Það er bara drullugaman. Hljóma eins og lítil stelpa með tíkarspena í hárinu. En svoleiðis er það. Smá innsýn. Smá af mér. Og nóg um það.

Pantaði flugfarið mitt til Íslands í gær. Hlakka til að kíkja á klakann. Verð þar 18.-28.ágúst. Nú svo var pabbi minn að tjá mér að hann komi hingað til mín 14.-23.júní. Það er ekki slæmt. Hlakka til að sýna honum hvernig ég bý hérna í "útlandinu". Hann hefur aldrei komi til Danmerkur.

Ég hélt íslenskt kvöld fyrir matarklúbbinn minn í sl viku. Í forrétt hafði ég grafinn piparlax, aðalrétt lambalæri og allt tilheyrandi. Í eftirrétt íslenskt nammi sem Huldan mín sendi mér frá Islandi og harðfisk frá ömmu og afa. Öllu skolað niður með rauðvíni. Dinnertónlistin var Fisherman's woman með Emiliönu Torrini. Vel heppnaið kvöld. Stelpurnar voru mjög hrifnar af öllu heila klabbinu fyrir utan harðfiskinn. Tjah nema Karin sem borðaði hann allan. Trúði mér reyndar fyrir því að hún hafi séð svolítið eftir því þegar hún hjólaði heim og allt eftirbragðið kom. Skil það svo sem.

Biokemien er farin að öskra á mig....ætla að fara að þagga niður í henni.

posted by xxx @ 19:10 

fimmtudagur, apríl 14, 2005

Erudi til í ad kvitta?

Tá er tad afgreitt og frágengid. Ég verd hérna í sumar, mest allt sumar. Ætla mér ad ad láta sjá mig og sjá adra á landinu í ágúst rétt ádur en brjálædid á 5.ønn byrjar. Svo Linda nei, ég var jú med vinnupláss í tjódgardinum sem ég var ad segja nei vid:( Ég verd ekki í tjódgardinum í sumar. En ég geri fastlega rád fyrir ad tú takir med mér sveiflu í ágúst á Kópaskeri og nágrenni ;)

Og tad er enn og aftur ad koma helgi, hvad er tetta eiginlega?
Ølkvøld í einhverju dularfullu færeyingahúsi á morgun, ætla mér ad kíkja tangad.
Svei mér tá ef ég kíki ekki í bíó á laugardaginn med vel vøldum einstaklingi og svo er Arnar barnar frá Uldum ad spila med bandinu sínu í Bruun´s gallery. Læt ekki vanta mig tar. Hlakka til ad sjá tig Arnar. Bækur,bækur, bækur. Ætla ad láta tær fylla dágódan slatta af helginni.

Og... var ad pæla. Ef tid stingid nefninu hingad inn erudi tá til í ad kvitta á kommentakerfid hérna fyrir nedan? Smá skodunarkønnun.

Knús

posted by xxx @ 08:13 

fimmtudagur, apríl 07, 2005

(Ó)reglumanneskja

Það er að koma helgi. Mér finnst alltaf vera helgi. Þessir 7 dagar vikunnar og 24 tímar í sólarhringnum nægja mér engan veginn til að gera allt það sem ég þarf að gera. Já, eða finnst að ég þurfi að gera. Það er aðallega skólinn sem tekur svona mikinn tíma svo ég get ekki kallað þetta gerviþarfir. Held ég. Ég get ef til vill kallað þetta fullkomnunaráráttu. Og samt held ég ekki. Hallast meira og meira að því að lektorarnir séu haldnir ofsóknaræði. En við því er ekkert að gera. Nám er frjálst val (í mínu tilfelli í það minnsta þar sem ég er svo heppin) og þetta er valið mitt.

Ég er ótrúlega góð í að setja mér reglur. Sumum fer ég eftir, öðrum ekki. Þessar reglur eru mjög góðar í að brjóta mig niður. Sjálfstraustslega séð. Ég set mér nefnilega mjög óheilbrigðar reglur og oft eru þær ómanneskjulegar. Ófreskjulegar. Til að mynda sef ég mjög sjaldan út, vakna alltaf kl 7. Flest alla morgna. Líka þegar ég er full (hihi en ég er líka ein af þeim sem geta ekki sofið út eftir djamm). Undanfarin kvöld hefur mér gengið illa að sofna svo ég ákvað í góðmennsku minni að leyfa mér að sofa til 9 í morgun. Ég er enn með dúndrandi samviskubit. Nei, þarna var ég að svíkjast undan reglu. Minni eigin reglu. Nagaði neglurnar upp á það í dag og braut aðra reglu :/

Mig langar ekki að nefna fleiri reglur því ég skammast mín svolítið fyrir þær. Sérstaklega því mér tekst sjaldan að fara eftir þeim og er í staðinn með samviskubit. Ég fæ að minnsta kosti eitt samviskubit á hverjum degi. Yfirleitt fleiri.

Ég get ekki trúað því að ég sé sú eina í heiminum sem gerir þetta.

Ég kynntist manni einu sinni sem var með mér í enskuskóla í N.Y. Ég man ekki hvaðan hann kom. En hann var í það minnsta alltaf glaður. Hann bjó í einu litlu herbergi og svaf á dýnu. Það var það eina sem hann átti af húsgögnum. Svo átti hann föt. Hann var yfirleitt í sömu fötunum en hann var alltaf hreinn. Hann var menntaður verkfræðingur í sínu heimalandi. Þarna var hann atvinnulaus en var að hugsa um að finna sér einhverja vinnu... svona því honum var farið að vanta svolítinn pening til að hafa í sig og á. Eitt sinn þegar við fylgdumst að á lestarstöðina sagði hann mér að honum þætti lífið kraftaverk. Hann færi á fætur hvern einasta dag með bros á vör. Hver dagur væri hátíð sem bæri að fagna. Þannig leit hann einfaldlega á lífið. Við værum heppin að fá að lifa því. Og í því umhverfi sem við fæddumst í(Jú, ekki bý ég við fátækt, kúgun eða ófrið, neibb. Ekki ég, ég er svo heppin).

Þennan mann þekkti ég í mánuð. Ég mun líklega aldrei sjá hann aftur. En ég mun alltaf muna hann. Einn af þessum einstaklingum sem hafa áhrif á mann fyrir lífstíð. Einfaldlega af því bara, þeir eru eins og þeir eru.

Ég er enn að brjóta heilann yfir því afhverju ég hugsa ekki eins og hann. Inn á milli tek ég mig til og ákveð að hugsa eins jákvætt og hann. Yfirleitt tekst mér að halda mig við það í einn eða tvo klukkutíma en þá stend ég mig að því að vera farin að hafa áhyggjur af einhverju.. hinu eða þessu. Það er í það minnsta ekki áhyggjur af byssukúlum sem dynja á húsunum fyrir utan eða hvernig ég í andskotanum eigi að finna eitthvað til að borða yfir daginn. Og alls ekki er ég að deyja úr áhyggjurm yfir því hvaða manni ég verð seld næst eða hvort pabbi minn berji mig á morgun. Það er ekki minn heimur. En eitthvað finn ég, bara eitthvað sem ég mögulega, hugsanlega, kannski get haft áhyggjur af.

..eh.. ég held að þið skiljið hvað ég meina. Steik.

posted by xxx @ 19:50 

þriðjudagur, apríl 05, 2005

Treytt umræda

"Af hverju eru íslensk kvenfólk svona miklar druslur en
amerískt alveg pottþétt efni í eiginkonur...

Ekki það sé eitthvað slæmt með þær íslensku ef maður
er bara að leitast eftir skyndikynnum en það koma tímar
sem maður vill eitthvað meira en það druslugenið í þeim
er svo kraumandi að maður þarf að leita helvíti vel... og
þá meina ég leita allsstaðar, undir Vatnajökli og oní Mývatni...

Ef maður fer til Bandaríkjanna þá er maður varla lentur og búnnað
hitta e-h ameríska og it goes like: "I really wanna marrie you
but I have to go back to Kennedy and catch my flight back home"

Og ef þær eru einstæðar mæður þá versnar ástandið bara...
Djamma meira en hörðustu plötusnúðar á Ibiza, senda krakkann í
pössun hverja einustu helgi og ef það er engin pössun þá
er það bara Samsung sem passar (öðru nafni videótæki)

Er þetta því við erum í Evrópu, er þetta drykkjarvatnið, hvað
ætli sé skýringin á þessu?" Fann tetta á tilverunni hja visir.is.


..og ég er svo innilega ekki sammála. Og hvad med gaurinn sem skrifadi tett? Ég geri jú fastlega rád fyrir ad tetta sé karlmadur. Getum vid ekki sagt tad sama um íslenska karlmenn? Suma íslenska karlmenn, rétt eins og vid getum sagt tetta um sumar íslenskar konur. Já og örugglega sumar bandarískar konur og suma bandaríska karlmenn.

posted by xxx @ 10:05 

sunnudagur, apríl 03, 2005

Blóm í haga

Gaman í gær. Svo gaman að ég er með dúndrandi timburmenn í dag. Nehei það var sko ekki ætlunin. Shit happens. Og shit gerðist í gær. Fór samt ekkert í bæinn, hélt mér í þessu partýi til 4 og staulaðist þá heim. Hef setið heima við krumpuð í allan dag.

Erfitt að njóta góða veðursins úti þegar maður hefur það svona skítt. Ég man þá góðu daga þegar ég var enn ung og myndarleg og fékk alls enga timburmenn. Það er liðin tíð. Svooo löngu liðin tíð. En það er kannski bara gott....því þá er maður skynsamur inn á milli og er hreinlega edrú. Nennir ekki að eyða tíma í timburmenn. Eyðileggja daginn fyrir sjálfri sér.

Það er komið vor með blóm í haga. Lov itt.

Ég er komin með vinnu hérna í Aarhus við heimahjúkrun í sumar. Það stefnir þar með allt í það að ég verði hérna. Skrítið pítið.

Ég ætla að fara að sofa... sofa timburmennina úr mér og mæta eldhress á lessalinn á morgun.

posted by xxx @ 21:28