Norn á Fanø

Það er alveg að koma helgarfrí! Stutt vika. Finnst hún nýbyrjuð. Á morgun legg ég land undir fót, en ég ætla að skella mér í sumarbústað með stelpunum. Fjölskylda Birgitte á nefnilega eitt stykki svoleiðis á Fanø sem er eyja á suðvesturjótlandi. Þar er norn. Já! Við ætlum allar sem ein að skella okkur til spákonu. Hef farið til slíkrar á Íslandi og varð ekkert yfir mig hrifin.
Ég hef alltaf trúað á að eitthvað sé til. Aðallega vegna þess að ég get ekki neitað því. Þá er ég að tala um eigin upplifanir þegar ég var yngri. Mjög vísindalega sinnuð. En jú ég get ekki neitað því að ég trúi eigin augum. Ekki annað hægt þó ekki sé hægt að útskýra.
Hins vegar er ég mjög skeptísk á allt svona. Læt ekki hlaupa með mig hvert sem er!
En þetta verður næs. 7 stelpur í bústað á eyju. Góður matur, slúður og rauðvín. Er alveg með fiðrildi í maganum.
Góða helgi! posted by xxx @ 21:56
sunnudagur, apríl 23, 2006
Ég og Nick Cave, like this...
Nú hef ég átt í stormasömu tónlistarsambandi við Nick Cave í 6 ár. Þetta byrjaði ágætlega hjá okkur á sínum tíma þegar ég var 16 ára gömul og að uppgötva hann fyrst. Hlustaði svona á hann með öðru eyranu og raulaði með. Eins og ég geri yfirleitt í samböndum mínum við aðra tónlistarmenn. Svo þegar ég var rétt skriðin yfir átjánda aldursárið hitti ég strák. Samband mitt við hann þróaðist og leiddi í allt aðra átt en það sem ég átti með Nick Cave. Við getum kallað það ástarsamband. Ég varð rosa skotin og áður en ég vissi af var hann orðinn kærastinn minn. Ég dansaði á rósum og bleikum skýjum í þrjá mánuði. Þessi strákur kenndi mér að meta Nick Cave á annan hátt. Hann hafði það fyrir vana að sofna út frá diskunum hans og ég vandist á það líka. Fór að gefa textunum meiri gaum. Svo gerðist það eins og þruma úr heiðskýru lofti að strákurinn dömpaði mér. Jájá, bara rétt sísvona. Rétt eins og gerist í samböndum. Þau geta liðið undir lok jafnsnögglega og þau byrja. Komst aldrei almennilega að því afhverju en fékk þó margar ástæður sem mér fannst ekki alveg nógu trúverðugar. En svona er það einmitt oft þegar dump á sér stað. Ömurlegur fjandi. Og oft er ekkert betra að vita ástæðurnar. En það sem verra var, er að þarna tók samband mitt við Nick Cave líka stakkaskiptum. Ég var brjáluð út í hann. Já, brjáluð! Ég tengdi þessa tvo karlmenn við þunglyndi og grét í viku. Grét og grét og grét. Já, svona eins og maður gerir þegar maður er í ástarsorg. Eftir viku með hor í nös og tár í augunum ákvað ég að nú væri nóg komið og pakkaði öllu niður sem tilheyrði þessum tveimur gaurum. Lét það allt saman hverfa. Fannst ekki rétt að láta svona stutt samband skemma fyrir mér lengri tíma. Og þar með var Nick Cave úr sögunni, gleymdur og grafinn í 3 1/2 ár ásamt þessum fyrrverandi kærasta mínum. Undanfarnar vikur hef ég verið að uppgötva Nick Cave aftur og farin að geta hlustað á tónlistina hans. Sem er svooo góð. Ég hef sem sagt endurheimt Nick Cave úr heljum meðan kærastinn fyrrverandi er grafinn á sínum stað.
Svona er þetta með mig og mín tónlistarsambönd. Þegar ég er að takast á við slæmt tímabil í lífinu sem allir gera jú öðru hverju legg ég í vana minn að kaupa mér 2 geisladiska. Þá hlusta ég svo á meðan þetta tímabil er að líða hjá og þegar ég sé ljósið í myrkrinu pakka ég þeim niður. Eins og til merkis um að þetta tímabil sé liðið og ég geti farið að takast á við aðra hluti. ..svo er aldrei að vita nema ég uppgötvi tónlistina aftur síðar en þá á öðrum forsendum. posted by xxx @ 18:59
laugardagur, apríl 22, 2006
Ái!
Einu sinni í mánuði verð ég hreinlega VEIK! Finnst þetta assgoti léleg hönnun á kvenmanni. Hjólaði grátandi heim af lessalnum í dag og sá verkjalyf í hyllingum. Kom við í Nettó þar sem ég keypti fullt af súkkulaði en þar byrjuðu svitakófin. Þegar ég kom heim dældi ég í mig verkjalyfjum.
Guð hvað ég hlakka til þess að geta farið að skrifa upp á morfín. posted by xxx @ 18:45
Deitmenning
Í dag var ég að labba niður strikið. Förinni var heitið í bóksölu læknanema að versla inn bækur fyrir kúrsinn sem ég er í sem nú þegar er liðin ein vika af. Allt í einu kemur maður á harðahlaupum á eftir mér (en ég fór mjög hratt yfir) og þegar ég leit á hann þekkti ég andlit sem ég hafði séð bregða fyrir í skyndi mínútu áður. Hann pikkaði í mig og spurði mig hvort hann mætti ekki bjóða mér í kaffi við tækifæri. Mér brá svolítið enda ekki vön að ókunnugt fólk sé að bjóða mér á deit á miðju strikinu. Að lokum stundi ég upp ... "nej det tror jeg ikke, jeg har nemlig en kæreste". Örugglega mest notaða lygi í heimi þegar fólk þarf að redda sér út úr svona aðstæðum, í mínu tilfelli var þetta að vísu ekki lygi en ég hugsa að ég hefði sagt þetta þó að lygi þyrfti til. Einhvern veginn fannst mér ég ekki geta sagt bara nei.
Svo varð mér hugsað til mismunandi deitmenninga. Danir eru svipaðir og íslendingar. Fólk hittist á djamminu eða kynnist við aðrar aðstæður gegnum sameiginlega vini, í skólanum, í vinnunni. Enginn vogar sér að bregða sér upp að ókunnugri konu eða karlmanni á förnum vegi og bjóða viðkomandi út með sér. Sú manneskja yrði álitin eitthvað skrítin. Kannski er það vegna þess að á Íslandi er samfélagið svo lítið. Sömu andlitin sjást aftur og aftur. Fólk býður á deit ef það hefur sést á djamminu og ef til vill eitthvað gerst þar.
Ég bjó í Bandaríkjunum (New York) á tímabili þegar ég var enn ung og sæt. Þar var ég alltaf að lenda í því að ég var stoppuð og spurð um símanúmer. Þar er samfélagið líka miklu miklu stærra. Þú sérð andlit en svo hverfur það í fjöldann og hugsanlega sérðu það aldrei nokkurn tímann aftur.
Annars hef ég aldrei verið hrifin af deitum... Þegar maður á að vera að spila út sínum bestu spilum. Kann það ekki. Lít alltaf út eins og fífl og er feimin. Klaufsk. Hef aldrei neitt að segja. Enda líka ekki í þjálfun. Kannski er þetta einhver kúnst. Eitthvað sem hægt er að læra.. rétt eins og að daðra. ;) posted by xxx @ 00:16
sunnudagur, apríl 16, 2006
Kolding

"Mamma, ég ÞARF að eignast gítar" (Jónatan,3ára)Brýn nauðsyn, á laugardagskvöldi!
"Já, annar staðurinn er fyrir svona yngra fólk og hinn fyrir aðeins eldra. Eigum við ekki að fara á þann fyrir eldra fólkið, á hinum staðnum eru svo miklar gelgjur" (Halla,23ára) Mér finnst hræðilegt að ég sé farin að velja staðinn fyrir eldra fólkið!
"Jamen, du er fra Island, du er fuldstændig som Mary og du læser medicin i Århus! Hvad fanden laver du her i Kolding?" (Lokalíbúi,?ára) Já vinur, ég er að djamma!Pleased to meet you too!
"Ja hvis jeg skal vælge ét sted her som jeg synes om må jeg sige Kolding Storcenter. Det indeholder utrolig gode og flotte butikker" (Guðný,24ára)Svar mitt þegar ég var spurð að því hvernig mér litist á Kolding! Hvað gat ég sagt, það var páskafrí og söfnin og þess háttar seværdigheder ekki opin!! Held samt að gaurinn hafi ekki skilið hversu mikil ironi fólst í þessu hjá mér.
"Mamma, getum við farið og keypt gítar núna. NÚNA!" (Jónatan,3ára) Kl 8 á sunnudagsmorgni. KLukkutíma eftir að við komum heim.
Vægast sagt góóóð ferð í alla staði. Takk Halla, Jónatan og Elín.
Jahérnahér. Held svei mér þá að mér finnist nóg komið af þeim óstýrilátum sem hafa fylgt mér sl 2 vikur. Tilbúin að ýta á pásu og verða jafnvel soldil kærasta aftur. Stóra greyið er á 2.önn í læknisfræðinni (já, maður! Náði mér í þetta beibí) og gerir lítið annað en að grúska í bókum. Tjah og þó. Hann virðist alltaf geta smeygt einu og einu partýinu inni í skedjúlinn sinn. Eitthvað sem ég get ómögulega þegar ég er í svona massívum lestri. Gott að því tímabili er lokið hjá mér. Svei þér anatomia og svei þér fysiologia. En núna ætla ég að dunda mér við að hella mér í Mikorbiologiuna. Lág fallprósenta í því fagi þó lesturinn sé mikill. Svo ætli það eigi ekki eftir að blessast allt saman.
Er búin að fá tilboð um vinnu sem hjúkrunarfræðingur á tveimur stöðum í RVK í sumar. Aldeilis hlessa. Vissi ekki að ég mætti fara að vinna sem slík þar sem ég er bara búin með þrjú ár af náminu og lyfjafræðin er ekki fyrr en á næstu önn. Býst fastlega við að taka eina slíka stöðu næsta sumar. En í sumar ætla ég að vera utandyra. Dissa öll gylliboð um hjúkrunarfræðingsstöður.
out posted by xxx @ 16:18
föstudagur, apríl 14, 2006
In da breinhás
Hitti varmemesteren ("húsvörðinn") hérna á kollegiinu á þriðjudaginn, fékk lyklana og kíkti á íbúðina. Vildi athuga hvort mér fyndist þörf á að mála. Það fannst mér svo ég flýtti mér til baka og bað um málningardót og málningu. Mesteren er ótrúlega hress kall og sagðist geta hjálpað mér með allt hérna á kollegiinu nema ástarsorgir... þó að hann gæti nú sagt mér strax að kærastar sem yllu mér ástarsorg væru fífl. Ég vippaði stiganum á aðra öxlinga kassa með penslum og tilheyrandi á hina. Og tók svo upp málningarföturnar. Mesteren horfði agndofa á mig og spurði hvort ég réði við þetta allt saman. Ég hélt nú það og byrjaði að rölta af stað. Svo kallaði hann á eftir mér "ætlar þú að mála íbúðina sjálf?". "Já" svaraði ég og fékk til baka..."det er sgu fandeme sejt".
Á miðvikudeginum var búið að mála (við stálum fötum á skejbysygehus til að mála í og litum því út eins og galningar. Er ekki enn búin að ná allri málningunni úr hárinu mínu)og svo komu allir karlmennirnir úr sygeplejeskolen að hjálpa okkur Arnari með að flytja (enginn af þeim er samkynhneigður... aldeilis ekkert samkynhneigt við þá!). Þar fyrir utan komu Mira og Andrés. Það tók þess vegna enga stund að flytja dótið okkar beggja. Svo skellti ég mér með Mikkeli (vini Arnars og tilvonandi eiginmanni mínum) i IKEA að kaupa borð og stóla til að hafa í herberginu mínu. Maðurinn féll 4 sinnum á bílprófinu (þrisvar á því venjulega og einu sinni á meiraprófinu). Við keyrðum yfir á rauðu, beygðum ólöglega, lögðum ólöglega og týndum bíllyklunum í IKEA. Allt reddaðist þetta samt að lokum og þegar heim var komið leystist flutningurinn upp í partý... sem endaði svo með því að Arnar faðmaði klósettið. Ég náði hins vegar að setja borðið mitt og stólana saman (sem voru bæ ðe vei í frumeindum) inn á milli þess sem ég var kölluð fram til að bunde øl. Rétt til að sýna að íslenskar stelpur geta sko líka :)
Núna er ég nokkurn veginn komin með allt á sinn stað. Skelli mér til Kolding annað hvort í kvöld eða í fyrramálið að hitta Hölluna mína. Er enn að ákveða mig. posted by xxx @ 14:39
sunnudagur, apríl 09, 2006
Helgarbókin

Jæja! Fór á mjög vel heppnað djamm á föstudagskvöldið. Djömm sem eru ekki planlögð og þar af leiðandi þurfa ekki að standa undir væntingum eru yfirleitt best. Var búin að lofa Freysa að kíkja með honum á fredagsbar og sötra með honum bjór. Eftir síðdegisblund á föstudeginum tölti ég niður á fredagsbar og hitti Frey, Brynju og Hjördísi. Þau höfðu líka náð prófunum svo við vorum yfir okkur ánægð. Arnar skaut líka upp kollinum. Íslendingarnir týndust svo heim eitt af öðru en að sjálfsögðu var ég ekki á þeim buxunum að fara heim um 21leytið. Svo ég hjálpaði umbilicus að laga til eftir fredagsbar og skellti mér í eftirpartý niður í kjallaranum á medicinerhuset og þar á eftir í partý hjá samfundsfagdeildinni í Au.Um hálfþrjúleytið voru allir sem ég þekkti farnir heim að sofa svo ég skreið hingað heim. Já eða hjólaði. Veit ekki hvernig ég fór að því. En heim komst ég. Vaknaði samt upp með hina hræðilegustu timburmenn á laugardeginum og þurfti að skrölta með þá í påskefrokost kl 13. Skammaðist mín svolítið því Kamilla sem hélt påskefrokostinn hafði verið að djamma með mér kvöldið áður og það sá ekki á henni. Hins vegar sat ég með svarta bauga undir augunum og tremma. Held að það vanti nokkur gen í mig fyrir transcription af alcohol dehydrogenasa. Hefði viljað hafa soldið meira af honum. Kannski hefði ég mátt vera aðeins "edrúari" þegar ég fór að sofa. Kannski.
Í gærkvöldi brá ég mér svo í gervi beibísitter. Passaði Mána litla hans Freysa. Það sem þetta litla skott er frábært. Við kubbuðum, spiluðum slönguspilið og horfðum á Ronju Ræningjadóttur. Svo burstuðum við tennurnar, pissuðum og lásum "Litla ljóta andarungann". Svo var litla krílið sofnað. Og ég gat dottað í sófanum fyrir framan sjónvarpið. Núna langar mig næstum því að eignast barn. En bara næstum því...og bara ef það er alveg eins og Máni.
Skellti inn nýjum link á Jónatan hennar Höllu og á Miru sem býr hérna í Árósum. Nú og líka á splunkunýja barnið í kringum mig. Vinkonur mínar eru svo duglegar að fjölga sér. Linkur á hana litlu sætu Þórdísi Kristínu. Hlakka til að sjá hana í sumar.
Jæja ætla að fara að laga aðeins til í kotinu. Fæ manneskju í mat eftir smá ...og þynnka gærdagsins er máluð upp á alla veggi. Þvo hana burt. posted by xxx @ 17:10
fimmtudagur, apríl 06, 2006
Hah!
Hah! Snýtti þessu prófi. Og prófdómurunum fannst bæði ritgerðin og fyrirlesturinn okkar mjög good. Hrósuðu okkur alveg þrisvar fyrir það. Svo núna er páskafrí!! Reyndar einhverjir tímar á mánudag og þriðjudag sem ég kannski dúkka upp í. En hver nennir að gera eitthvað í tvo daga til að gera svo ekki neitt í heila viku? Vafatriði. Fæ íbúðina mína á miðvikudaginn, nánast búið að redda flutningsliði og bíl með kerru! Gaurarnir sem eru að flytja út ætla þar að auki að gefa okkur eldhúsborð og hyllur í eldhúsið. Perfektisimo!
Sérstakt! Hringdi auðvitað heim(til íslands) eftir prófið til að láta vita hvernig hefði gengið. Tilkynningaskylda. Stundum mætti halda að elskuleg amma mín væri í prófum fyrir mig, hún er jafnstressud og ég. Hugguleg tilkynningskylda sem mér þykir mjög vænt um. Í símaskránni minni stendur enn "mor og far"við símanúmerið heim(setti það inn rétt eftir að ég kom fyrst til Danmerkur í højskole) á Brávöllum. Fæ mig ekki til að skrifa bara pabbi. Það er einmitt það sem er sérstakt. Einhvern veginn..í hvert sem ég hringi heim þá er ég að hringja í mömmu líka. Hversu skrítið sem það virðist hljóma. Mér finnst það svo huggulegt. Því ég veit nákvæmlega hvað hún myndi segja. Hvernig tónninn í röddinni hennar myndi vera. Hvernig hún myndi hlægja.
Er komin með vinnu á Íslandi í sumar. Fékk allavega jákvætt svar frá Þjóðgarðinum og tilboð um tímabil frá 30.júní til 20.agúst. Sem ég ætla að þyggja. Líklega í síðasta skipti sem maður eyðir sumrinu annars staðar en í sjúkrahúsbransanum. Hlakka til að eiga sumar utan dyra. Innan um birkitrén og skógarþrestina. Með fjölskyldunni. posted by xxx @ 17:32
miðvikudagur, apríl 05, 2006
Børn..ekki tad sem madur vill!
Alltaf er mér jafnandskoti illa vid tad tegar strákar fæddir ´84 og sídar bjóda mér á date. Hvernig voga teir sér. Held ad tetta hafi eitthvad med tad ad gera ad ég á bródur sem er bara ári yngri en ég, sem ég lít alltaf á sem litla bródur. Lige meget hvad. Foreldrar mínir ólu mig upp sem stóru systur. Einhvern veginn neita ég ad leyfa karlmønnum(??) á tessum aldri ad fullordnast. Ætli teir verdi nokkurn tímann fullordnir í mínum augum?
Samt sem ádur virdist tessi aldurshópur einmitt hafa alveg sérstakt auga fyrir mér. Furdulegt. Tengist líklega tví ad madur virdist alltaf getad fengid tad sem madur ekki vill. Og tar af leidandi ekki tad sem madur vill. posted by xxx @ 09:08
laugardagur, apríl 01, 2006
Leiðindahelgi
Prófalestrarhelgi. Var búin að plana djamm í kvöld og róðraferð á sunnudag. Fór í stelpupartý í kvöld og sötraði hálfa rauðvín, bæjarferðin varð að engu. Held að ég sleppi róðrinum. Það rann nefnilega upp fyrir mér í dag að ég er ekki súperman. Efast örlítið um að ég nái að læra 500 bls utan að á 5 dögum ef ég ætla líka allt annað. Þó að maður geti nú ýmislegt. Er líka að flytja. Komin í íbúðina hennar Ástu og þar með er fyrsta áfanga flutinganna lokið. Næsti áfangi verður tekin eftir tvær vikur en þá fæ ég íbúðina mína afhenta. Annars er ég ógislea ástfangin af þeim stað sem ég er núna. En samt, alltaf best að vera þar sem maður er með sitt. Með sjálfum sér. Ég er syfjuð, ekki sofið mikið síðustu daga. Ritgerðavinna, stress og flutningar. Smá adrenalín í blóðinu. Nýt þess bara. En eftir tvær vikur þá er það allt búið. Rótleysið vonandi farið. Og núna er ég búin.
Á deit á lessalnum í fyrramálið. Svo það er best að fara að halla sér. posted by xxx @ 00:59
