miðvikudagur, mars 31, 2004

Jæja elskurnar mínar. Minns er þreyttur. Og þar að auki tók ég stökkbreytingum í dag. Ákvað að taka mér pásu frá Viktor Albeck og taka mér stuttan göngutúr og fara í bakaríið. Labbaði fram hjá þessari líka freistandi ljósastofu og þrátt fyrir mikla hræðslu við krabbamein ákvað ég að fara í einn tíma. Á hurðinni var skilti með aðvörun um að nýværi búið að skipta um rör... noh.. hló að því .. ég brenn aldrei! Skellti mér í bekkinn og kom glöð í bragði út. Tók meira að segja að mér modeldjobb á leiðinni heim í Viktor Albeck... einhver maður stoppaði mig og fékk að taka myndir af mér labba yfir brú.. sagðist vera að læra að mynda. Hélt nú að það væri nú ekki mál. ...meðan hann tæki ekki myndir af mér naktri. Gætu verið notaðar gegn mér þegar ég verð forseti eða eitthvað. Svo skellti ég mér á stólinn í Viktor og mér til míkils hrillings blossaði upp bruninn þegar leið á kvöldið og þegar ég tók strætóinn heim leit ég út eins og þvottabjörn. Rauð í framan .. og já baugar undir augunum. Helvíti kúl. Þá er bara að draga upp rykfallna meikdolluna. Ég er svo ánægð með að vera stelpa.
Visst email er að tröllríða hotmailaccountinum mínum.. svo ég held að ég svari því hér í eitt skipti fyrir öll... Værsgo:

Verið velkomin í næstu útgáfu af því að kynnast vinum ykkar. Hér er
það sem þú átt að gera: Klippa (COPY)(ekki áframsenda) allt
e-mailið og
afrita (PASTE) það í nýtt e-mail sem þú svo sendir. Breyttu öllum
svörunum
svo að þau eigi við þig. Sendu þetta svo til allra sem þú þekkir, þar
á
meðal manneskjunnar sem sendi þér þetta. Þú ættir þannig að læra ýmsar
>lítt þekktar staðreyndir um vini þína!
>
>
>
>1. HVENÆR VAKNARÐU Á MORGNANA?
Tjah... það rokkar frá 5 til 8..
>
>2.EF ÞÚ GÆTIR SNÆTT HÁDEGISVERÐ MEÐ EINHVERJUM FRÆGUM, HVER VÆRI ÞAÐ?
Jesú

>3.GULL EÐA SILFUR?
Ég er gull
>
>4. HVER VAR SÍÐASTA MYNDIN SEM ÞÚ SÁST Í BÍÓ?
Það var...hm.... Gothika
>
>5. UPPÁHALDS SJÓNVARPSÞÁTTURINN ÞINN?
Sex and the city, Friends og 24 hours

>6. HVAÐ BORÐARÐU Í MORGUNMAT?
Það sem hendi er næst á leiðinni út... yfirleitt frekar fátæklegt (...ég er alltaf of sein í strætó).
>
>
>8. GETURÐU SNERT NEFIÐ Á ÞÉR MEÐ TUNGUNNI?
Jáhá og gott betur.
>
>9. HVAÐ VEITIR ÞÉR INNBLÁSTUR?
Lífið
>
>
>10. HVERT ER MIÐNAFNIÐ ÞITT?
Jóna
>
>
>
>11. STRÖND, BORG EÐA SVEITASÆLA?
Allt í bland
>
>12. SUMAR EÐA VETUR?
Sumar
>
>
>13. UPPÁHALDS ÍS?
alæta á ís....eeeeeeeeeelska ís
>
>14. SMJÖR, SALT EÐA SYKUR POPP?
Salt
>
>15. UPPÁHALDS LITURINN ÞINN?
Blár grænn.. svartur, dökkrauður
>
>16. UPPÁHALDS BÍLLINN ÞINN?
Það er deffínetlí hann Mjási, mtsúbítsí kollt. Fer allt sem eg vil. Lútir gjörsamlega mínum vilja.

>17. HVAÐ FINNST ÞÉR BEST AÐ BORÐA Á SAMLOKU?
Skinka, ostur, ananas, pepperoni
>
>
>18. HVERT FÓRSTU SÍÐAST Í FRÍ?
ég fór í jólafrí til Húsavíkur
>
>19. HVAÐA PERSÓNUEIGINLEIKA FYRIRLÍTURÐU?
Persónur sem koma falskt fram og baktala. Fíla fólk sem er eins og það er .. alltaf.
>
>20. UPPÁHALDSBLÓM?
Rósir
>
>
>
>21. EF ÞÚ YNNIR STÓRA POTTINN Í LOTTÓINU, HVERSU LENGI MYNDIRÐU BÍÐA ÁÐUR EN ÞÚ SEGÐIR FÓLKI FRÁ ÞVÍ?
>Ég gæti ekki þagað yfir svoleiðis gleðifregnum.... myndi segja pabba það fyrst af öllum.
>
>22. SÓDAVATN EÐA VENJULEGT VATN?
>Bæði
>23. HVERNIG ER BAÐHERBERGIÐ ÞITT Á LITINN?
Hvítt og ljósgrátt.. svona állitað
>
>HVAÐ ERU MARGIR LYKLAR Á LYKLAKIPPUNNI ÞINNI?
Á ekki lyklakippu en ég á 3 lykla, af íbúðinni, hjólinum mínu og krufningaskápnum mínum í háskólanum... nú og svo á ég aðgangskort að Viktor Albeck
>
>5. HVAR ÆTLARÐU AÐ EYÐA ELLINNI? ?
Á Íslandi með Huldu... með kokteil í annarri og .. eitthvað enn ískyggilegra í hinni... minnir mig. Var það ekki Hulda?
>
>
>26. GETURÐU JÖGGLAÐ?
Jögglað smögglað.... hvað er það? Ef það þýðir að jóðla þá kann ég það ekki þrátt fyrir miklar og langar tilraunir . Ég elskaði Heiðuþættina og reyndi eins og bráluð að læra að jóðla.. svo bræddi ég oststykki á eldavélahellunum á Brávöllunum (eins og afi hennar Heiðu gerði yfir opnum eldi í Heiðuþáttunum) mömmu til mikillar armæðu. Mér finnst leiðinlegt að geta ekki jóðlað. Getur einhver sagt mér hvað jöggla þýðir?
>
>
>27. UPPÁHALDS DAGUR VIKUNNAR?
Laugardagur
>
>
>28. RAUÐVÍN EÐA HVÍTVÍN?
Rauðvín
>
>
>
>29. HVERNIG EYDDIRÐU SÍÐASTA AFMÆLISDEGI?
Með Krissa mínum... hérna í Aarhus. Og fullt af fallegum smsum og símhringingum.
>
>30. SEGÐU EITTHVAÐ FALLEGT UM MANNESKJUNA SEM SENDI ÞÉR ÞETTA:
Halla: Þú er æði pæði, hlakka til að sjá þig í sumar. Og að sjá litla Jónathan.....
Harpa: Sætasta frænkan mín! Þú rokkar. Og gangi þér vel í samræmdu prófunum
Diljá: Það verður ógeðslega gaman að fá þig til Aarhus.
... og allir hinir... ég elska ykkur öll... þrátt fyrir að ég nenni ekki að skrifa email.


Takk fyrir mig og góða nótt.

posted by xxx @ 22:19 

Mig dreymdi sprautur i nott. Veit ekki alveg afhverju og vid hvad eg a ad tengja tad... hins vegar las eg adeins um v.mediana cubiti i gær.. og eg var akkurat ad sprauta mig i hana i draumnum.. medan eg var ad labba eitthvert. Man ad folk rak upp stor augu. .. og svo for eg ad pæla. Afhverju i fjandanum er ekki selt koffin i sprautuformi.. eg meina madur pissar svo ogedslega mikid af øllu tessu kaffi. Tvær flugur i einu høggi, madur getur verid uppdopadur af koffini allan lidlangan daginn og samt sloppid vid allar tessar klosettferdir. Personulega hleyp eg alltaf a klosettin herna a nedri hædinni i Viktor Albeck fyrir framan lessalinn. A ødru klosettinu er grafid lik nidur i golfid sem er byrjad ad rotna allillilega og a hinu klosettinu er draugur sem slekkur alltaf ljosid um leid og eg er buin ad kveikja tad. Tannig ad koffin i sprautuformi i hillum Bilka er malid. Ætla ad snua mer aftur ad bokunum.

posted by xxx @ 11:13 

sunnudagur, mars 28, 2004

Síðustu kvöld hef ég farið út úr strætóinum sem ég tek daglega(... tvisvar þrisvar á dag) á vitlausum stað. Ýmist einni stoppistöð of snemma eða einni of seint. Ég skil ekki afhverju ég man ekki lengur hvar ég á heima. Ætli próflestrarfílingurinn leggist svona í mig?
Þegar við elsku Hulda mín bjuggum saman í Kópavoginum bíllausar og allslausar. Átti Hulda til að 140una alla leið á endastöð (í Hafnarfirðinum).. án þess að fatta nokkurn skapaðan hlut fyrr en strætókallinn henti henni öfugri út. En Hulda er líka einstök. Þess vegna þykir mér svona ógeðslega vænt um hana. Þannig að ég má sátt sitja ... fegin á meðan ég enda ekki í Viborg. Nú og svo eru ljóshærðir
danir á 10 semester farnir að spyrja mig út úr anatomíunni í pásunum sínum. Húsgögnin eru farin að brosa til mín. Ég er húsgagn.
Gúllas (&%/$#) er aftur farin að breima.. kannski ég hendi honum til Arnar ..(páskaarnar) (djöfull er asnalegt að Örn sé í eignarfalli Arnar.. skítaíslenska mig langar að segja Örns).... hann var í það minnsta eitthvað að tala um að tantra kött... og Freysi lika... ef mig minnir rétt.

posted by xxx @ 21:29 

mánudagur, mars 22, 2004

Freysalingur hefur mikið verið að velta sér upp úr tölfræði síðast liðnu daga. Og þá upp úr hversu miklar líkur eru á að fólk falli á anatomíuprófinu í vor. Eftir hans miklu getgátur fór ég að skoða bekkinn minn ... og komst að því að ég finn ekki einn einstakling sem ég get gefið mér að falli vegna lítils lestur í það minnsta. En rakst á hins vegar aðra óhuggulega staðreynd... og reyndar frekar þunglyndislega pælingu sem ég ætti ef til vill ekki að vera að skrifa um hér. En samt. Ég er ansi hrædd um að bekkurinn minn sé samansafn af óheillakrákum. Og ég er ekki að grínast með það. Sit hér grafalvarleg við tölvuna með tárin í augunum. Nú, í bekknum erum við þrjú sem höfum misst annað foreldrið á innan við síðastliðnum tveimur árum. 2 einstaklingar hafa fengið að vita að annað foreldrið þeirra sé með krabbamein á háu stigi og annar einstaklingurinn hefur fengið að vita að foreldrið eigi mest 2 ár eftir ólifað. Hún er á leið til fjölskyldunnar sem býr í USA því foreldrið þarf jú að ákveða hvað á að gera við tau hugsanlegu 2 ár sem eru eftir. Annar einstaklingur í bekknum hefur nýlega fengið að vita að systir hennar sem er 2 árum eldri en hún sé með krabbmein, hvítbæði sem er drullualvarlegt og svart. 2 stelpur fengu að bíta í það súra epli í síðasta mánuði að kærastinn fluttu út með allt sitt hafurtask. Annað samband er líklega á leiðinni í vaskinn. Tetta eru í allt 9 einstaklingar.. og ekki veit ég nærri því allt um það sem gerist hjá fólki. Í allt erum við 25. Reikniði nú... Þetta gefur mér þónokkuð stórt safn af já ég vil ekki segja óheillakrákum, þetta er jú ekki óheppni heldur.. ... og ekki veit ég orð um það.... pissuskítavont. Og ekki meiri tölfræðilegar hugleiðingar takk.. þessar hafa leitt mig á hála braut.

posted by xxx @ 21:52 

föstudagur, mars 19, 2004

Ì dag er grenjandi rigning... ég vaknadi hin hressasta í morgun. Hafdi tekid fram pils í gærkvøldi í lagt tad mjøg fallega á skrifbordsstolinn og ætladi ad spóka mig í vorvedrinu í Århus í dag. Ég er íslendingur, ég er ekta víkingur, komin undan "vér skulum ei gráta bjørn bónda heldur safna lidi" og hef tvi ætlíd verid tortryggin a allt i kringum mig. Tekid øllu med gat og mikilli varúd. Fjandinn hafi tad og tad hefdi eg betur gert i dag. En Danmørk nadi ad plata mig, litla skassid. Ekkert vorvedur i dag, vorid er buid og haustid tekid vid aftur. Skiptir ekki mali, eg er komin i tad naid samband vid viktor ad eg mun engan tima hafa til ad spoka mig med vorinu næstu vikurnar. Jæja ætla ad halda afram ad safna naladofa i rasskinnarnar og fletja tær adeins betur ut..... tangad til næst..........................................

posted by xxx @ 17:16 

miðvikudagur, mars 17, 2004

..og nú er komið vor í Arhus, hélt upp á það með því að bjóða Freysaling út að borða í katínunni. Vorkenndi greyinu eftir hrakfarir síðustu daga. Það er ekki alltaf sem maður mætir grilluðum bjór í skólanum. Kötturinn er hættur að breima og er þögull sem gröfin... ljúft! Kettir eru góðir í hófi. Gúllas minn er samt á góðri leið með að setja mig á hausinn með himinháum vatnsreikningum. Hún er snillingur í að kveikja á "vatnshananum" á baðherberginu. Furðulegt nokk.... og svo sefur hún í vaskninum... og þegar ég þvæ mér um hendurnar nennir hún ekki einu sinni að færa sig. Spurning hvort flutti inn á undan.. ég eða hún!! Og hver borgar leigu.. KETTIR, púha!

posted by xxx @ 21:17 

sunnudagur, mars 14, 2004

Og nuna er heimiliskøtturinn a tørfinni allan lidlangan daginn.. ekki fridur fyrir øllu tessu breimi. Skitt madur!

posted by xxx @ 19:23 

fimmtudagur, mars 04, 2004

Var að koma heim úr matarklúbbinum mínum og þetta er eitt besta kvöld sem ég hef átt lengi. Við erum 6 stelpur úr bekknum sem hittumst annað slagið og gerum mat saman...og gerum eitthvað sniðugt í leiðinni. Í kvöld var mexikóskt þema...matur tónlist og stemming. Frábært kvöld. Fyndinn hópur líka því að við tölum ekkert svo mikið saman dags daglega erum jú allar saman með okkur usocial bækur einhvers staðar út í horni.. eins og það er í þessari læknisfræði. Ég og Lena eyðum mjög miklum tíma saman en hinar 4 eru ekki einhverjar sem ég eyði geigvænlegum tíma með fyrir utan skólann. Skemmtileg blanda.. ég íslendingurinn, 2 sænskar, 2 danskar og ein bandarísk sem er flutt hingað til Danmerkur til kærastans síns til að vera. ....... ákváðum að lyfta okkur aðeins upp áður en geðveiki próflesturinn gengi í garð... en það er að gerast hvað úr hverju... ásamt kvefi, hósta og öllu tilheyrandi. Efast að ég komist lifandi út úr þessu öllu saman. Ákváðum að eftir prófin..18.júni förum við í nudd saman.... á ströndina á eftir yfir daginn og ...DJAMM eftir það. Og þá er bara að leggjast í dvala og kreysta úr sér síðustu kraftana fram í maí. ... ... ... 2 og hálfur mánuður eru ekki neitt... lítið brot í hafsjó lífsins... for fanden hvað lífið verður fullkomið.. (jah.. eða eins fullkomið og það getur orðið) ef ég næ þessu...

posted by xxx @ 23:33 

þriðjudagur, mars 02, 2004

Neihei ég fór sko ekki í partý á laugardaginn... ég rotaðist klukkan 21. Og nei ekki er ég komin í samband við umheiminn því ég kemst ekki til að borga símreikninginn... eitthvað vandamál með leyniorðið mitt hjá Telmore.. vonandi kemst það í lag áður en langt um líður og þó..... það er viss stemming í því að vera svona útilokaður frá umheiminum en líklega ekki til lengdar. Mikið rosalega er allt að ganga á afturfótunum þessa dagana...

posted by xxx @ 23:09