Klukk
Jæja þá var ég klukkuð af henni Binnu minni! Fimm tilgangslausar staðreyndir um mig...hm!
1) Þegar ég var 6 ára gekk ég í svefni og pissaði í ruslafötuna í eldhúsinu. Mamma reyndi að stoppa mig en réð ekki við 6 ára stelpuna. Ég vaknaði ekki við átökin.
2) Það sem ég hræðist mest af öllu eru próf. Ég græt oft út af stressi.
3) Þegar ég er ein í bíl finnst mér best í heimi að stilla tónlistina hátt og syngja ennþá hærra með. Ég er mjög fölsk.
4) Á einu bjórkvöldi hjá MH steig ég á glerbrot en hélt að það væri samt ekki fast inni í hælnum á mér. Nokkrum vikum seinna sá ég að það hafði myndast svona gat í hælinn. Veit ekki hvort þið getið séð það fyrir ykkur. Komst þá að því að það var stærðarinnar glerbrot í hælnum á mér sem hafði vaxið inn í hælinn. Ég týmdi ekki að fara til læknis svo ég náði í skæri og klippti það út. Þetta var fyrsta skurðaðgerðin mín. Það sést ekkert á hælnum á mér í dag.
5) Ég hef aldrei brákað eða brotið bein. Ég er heldur ekki með neina skemmda tönn. Góð bein, ha?
Þá á ég að klúkka fimm. Ég klúkka Arnar, Evu Sonju, Summa, Höllu Jóns og Lindu. posted by xxx @ 18:54
miðvikudagur, september 21, 2005
Gudnyjarstadreynd dagsins
Karlmenn i bleikum bolum/skyrtum eru asnalegir. Nema teir seu samkynhneigdir, ta eru teir smart. posted by xxx @ 14:55
þriðjudagur, september 20, 2005
Nýr linkur
Var að bæta inn nýjum link á okkur læknanemana hérna í Árósum. Lítið komið á þessa síðu enn sem komið er. Allir uppteknir. Ætlunin er hins vegar að þetta verði upplýsingasíða fyrir okkur nemana og einnig fyrir folks sem vantar upplýsingar um læknisfræðina hérna í Árósum. Árósar er jú einstaklega skemmtilegur og góður staður og ekki er verra að háskólinn er alveg til að hrópa húrra fyrir. Gæti í það minnsta ekki verið sáttari við mitt val :)
Við læknanemar í Árósum
Þá er ég búin að lesa um heyrnina á norsku, dönsku og ensku í dag. Oh!Ég elska hvað þetta er allt sama fjölbreytt og skemmtilegt.
Knús posted by xxx @ 21:54
laugardagur, september 17, 2005
Djammarinn er dáinn, blessud sé minningin
Ég er ekki búin ad mæta á einn einasta fredagsbar sídan önnin byrjadi. Ég sem var fastagestur. Tegar stelpurnar sem ég bý med fá sér bjór ádur en tær kíkja í bæinn sit ég inn í herbergi ad sortera glósurnar mínar og plata svo í mesta lagi einhvern til ad elda med mér og fer snemma ad sofa. Svo verd ég ógedslega pirrud tegar fólk kemur heim á tremur mismunandi tímapunktum yfir nóttina svo ég vakna trisvar. Tegar ég er búin í vinnunni kl 14 (vinn 7:30 til 13:30 annad slagid um helgar) skýst ég heim til ad borda og hjóla svo upp í háskóla. Sit tar svo eins lengi og ég get hugsad mér og fer svo heim...og snemma ad sofa. Ég held ad kærastamyndinni minni sé farid ad finnast ég klikkud. Samt er tetta alls ekki og engan veginn eins ekstreme hegdun og tegar ég var á fyrsta ári. Allir vinir hans (og kunningjar mínir, kynntist honum í gegnum tau) eru sko alltaf ad djamma. Tad segir hann. Mér sjálfri er næstum tví farid ad finnast ég skrítin. Samt ekki. Ég er bara svona stemmd tessa dagana. Ætli ég hafi ekki meiri áhyggjur af tví hvad ödrum finnist en mér sjálfri. Ofan í tetta allt saman er ég rosa pirrud. Tad tarf ekkert til ad fara í taugarnar á mér. Stundum held ég ad ég sé næstum tví ad leita ad einhverju til ad pirrast yfir.
Langadi bara ad deila tví med ykkur hversu furduleg ég er tessa dagana. Nú svo ætla ég bara ad halda tví áfram. posted by xxx @ 17:45
miðvikudagur, september 14, 2005
Ég er í læknisfræði
Sat í medicinerhuset í dag á lessalnum að lesa. Eins og svo oft áður. Dúndraði mér í gegnum ónæmiskerfið í lífefnafræðinni og var nokkuð sátt. Ákvað að vera góð við mig, fara heim og versla inn fyrir vikuna. Eiga svo rólegt kvöld með "Desperate Housewifes" og "O.C." Pakkaði niður og mátti stappa létt á töskunni minni til að koma öllum bókunum fyrir. Reyndi að gera þetta allt eins hljóðlega og ég gat. Sendi nokkur bros til læknanemanna í kringum mig og hvatningarorð til gauranna fyrir aftan mig. En þeir eru með mér á önn. Létt í spori tiplaði ég svo í átt að dyrunum á lessalnum og því næst niður tröppurnar. Fyrst þá fattaði ég að ég var skólaus. Hafði gleymt að fara í skóna í öllum hamaganginum. Ég fer alltaf úr skónum þegar ég les. Get ómögulega lesið öðruvísi en með fæturnar uppi á borðinu eða einhvern veginn í klemmu. Mátti því læðast skömmustuleg til baka. Útskýra fyrir gaurunum fyrir aftan mig að ég þyrfti nú að fara í skóna og uppskar þónokkuð fliss.
Spurning hversu utan við sig maður getur orðið? posted by xxx @ 19:43
mánudagur, september 12, 2005
Alls konar Guðný og nýr fjölskyldumeðlimur.
Nú er gamla "utanviðsig" Guðný farin að segja mikið til sín. Hún gerir það alltaf þegar það er mikið að gera og hún er að flýta sér að öllu því sólarhringurinn er of stuttur.
Þegar hún ætlar að setja þvott í þurrkarann kveikir hún á þurrkaranum en setur fötin EKKI í.
Þegar hún ætlar að elda setur hún það sem á að fara í pottinn í pottinn (sem er í sjálfu sér helvíti vel af sér vikið) en kveikir svo á vitlausri hellu. Ef hún mögulega getur skemmir hún matreiðsluna fyrir annarri af sambýlingum sínum.
Þegar hún er að gera sig sæta á morgnana setur hún á sig eyeliner og gleymir að setja á sig maskara (engin furða þó henni finnist vanta eitthvað í andlitið).
Gamla "brussu" Guðný er líka komin í leitirnar en hún brýtur glös og hellir niður í miklu meira magni en vanalega.
Stundum finnst mér þessir tveir hlutar af mér einstaklega pirrandi. Sérstaklega þegar þeir koma fram af svona miklum krafti. En ég er ég og því verður víst ekki breytt *andvarp*!
Annars var ég ekki búin að segja ykkur frá nýja fjölskyldumeðliminum. Það er hún Þuríður. Þuríður hjólhestur. Ég fleygði Guðríði á braut og get ekki verið annað en hestánægð með það. Þið munið kannski hvað hún gerði mér í mars 2005. Nei aldrei aftur. Svo núna er það nýi hjólhesturinn minn sem er að rokka. Eitthvað sem sá gamli aldrei gerði. Þessi elska ber mig á baki sínu hvert sem ég fer. Það tekur mig skemmri tíma að hjóla en áður. Ég þruma upp allar brekkur án þess að blása úr nös (ekki segja að það séu ekki brekkur í Danmörku. Þær finnast í Árósum). Megi hún fylgja mér um ókomna tíð.
Annars er ég að verða kvefuð. Það er ekki gaman. Veit ekki hvort ég á að skamma Lenu eða Mikael fyrir það.
Nú svo fór ég í bíó um helgina. Dark Water. Hún er góð. Gætuð séð hana við tækifæri.
Ég bíð spennt eftir því að litli bumbubúinn hennar Heiðu fari að líta dagsins ljós. Það átti að gerast í dag samkvæmt sónarnum. Hvenær? Hvaða kyn?
Núður og naglalakk posted by xxx @ 21:18
miðvikudagur, september 07, 2005
Sólargeisli
Tá er ég komin yfir tetta kast mitt.Mikid rétt;eymd og volædi dugir skammt. Bretti upp ermarnar og er stálGudny aftur. Allt í einu virdast tessir litlu hlutir litlir aftur. Og ekki er verra ad løggan sem stoppadi mig á mánudaginn fyrir ad hjóla yfir á raudu ljósi sektadi mig ekki. Græddi sem sagt 5000 kall tar, sem gæti farid í føt... Vííííí........... posted by xxx @ 12:42
sunnudagur, september 04, 2005
Kast
Þegar maður er að missa sig yfir núverandi aðstæðum, sem ekki er hægt að breyta. Þegar maður sér ekki framtíðina í framtíðinni. Þá er gott að hafa einhvern sem tekur á móti tárunum.
Þegar allir smáu hlutirnir virðast allt í einu svo stórir... þá er auðvelt að tapa sjálfri sér. Þegar síðasti dropinn fellur. Þá er gott að hafa ást og umhyggju. posted by xxx @ 18:03
