laugardagur, desember 27, 2003

og by the way..tetta er tærasta snillid ->ruslpostur bannadur... mig langar svoleidis!!!

posted by xxx @ 21:41 

Í dag uppgötvaði ég jólakortin mín sem ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði fengið : / Svona er að eiga pabba sem er jafnutan við sig og afkvæmið. Ég heyp um allt hús leitandi að einhverju sem ég held á í hendinni. ... við pabbi hrösum um hvort annað leitandi að hvort öðru. ...

ég fekk voða sætar og fínar jólagjafir. Skó, sturtusápur, body lotion, nuddkrem... . ilmvatn (armani), halsmen, eyrnalokka, armand, peysu, ulpu, andlitskrem, mp3 spilara. Svo er eg buin ad fa pening i ammlisgjöf................ nammi og læti. Allt hlutir sem eg nota. Gott tegar madur byr i utlöndum og nennir ekki að taka allt of mikið með sér.

posted by xxx @ 21:02 

miðvikudagur, desember 24, 2003

Gleðileg jóla og farsælt komandi ár. Knús, kossar og stórt faðmlag. Hittumst hress á nýju ári.

posted by xxx @ 17:12 

sunnudagur, desember 21, 2003

Ég skellti mér í heimsókn til Katrine í dag. Stelpan átti afmæli í sl viku svo ég keypti litla sæta ammlisgjöf handa henni. Þar að auki er hún nýflutt að heiman svo ég þurfti að kíkja á húsakynnin. Þegar við sátum heima hjá henni, drukkum kaffi og spjölluðum varð mér hugsað til þess þegar ég kom til Danmerkur. Hún var fyrsta manneskjan sem ég kynntist. Ég kom með allan minn farangur askvaðandi inn á herbergið sem átti að hýsa mig næsta hálfa árið í fylgd Tomasar sem er 1276 x ég að stærð á alla kannta. Það fyrsta sem hún sagði við mig var að hún hefði verið farin að hafa áhyggjur af því að ég kæmi ekki! Við töluðum ensku. Svo þurftum við að gjöra svo vel að búa saman... venjast háttum hvor annarrar og taka tillit til þess að við vorum kannski alls ekki og engan veginn sammála um allt (sem er einmitt það besta við að vera á hojskole). Ég þurfti að venja mig við að sofa við hrotur á hverri nóttu ( hún er 180 cm á hæð og hrýtur eins og hún fái borgað yfir það á nóttunni) og hún mátti gjöra svo vel að hlusta á ýlfrið í mér. Hún þufti að sætta sig við það að þegar ég kom heim af djamminu hellti ég vatni yfir allt.. (fyrir utan rúmið hennar -mitt rúm fékk að votna) og tæmdi fataskápa til að leita að einhverju sem ég vissi ekki hvað var. Ég talaði enga dönsku til að byrja með. . svo eftir mánuð tók ég þá ávörðun að .. nú yrði ekki töluð meiri enska í kringum mig. Og allir hættu að tala ensku við mig... þar á meðal hún. Það tók við tími misskilnings og handapata. En ég gaf mig ekki.. ENGIN ENSKA TAKK ;/ Eftir 2 mánuði vorum við farnar að skilja hvor aðra aftur. Hún bauð mér í heimsókn hingað til Aarhus þar sem við fórum á djammið og hún varð að hreinsa heila seven eleven búð eftir mig!! Ég vildi jú sjálf setja tómatsósu á pylsuna mína :) ... mér varð hugað út í þetta allt þegar við sátum þarna á sófanum og töluðum um heima og geima án þess að eiga í nokkrum vandræðum með að skilja hvor aðra. ... mikið vatn runnið til sjávar á einu ári..

Spáin er slæm fyrir næsta sólarhring. Snjóstormur í vændum og þá er jú lestarkerfið í hættu. Ef ég kemst ekki til landsins fyrir jól langar mig að óska ykkur góðra jóla og við sjáumst í sumar.

posted by xxx @ 18:54 

föstudagur, desember 19, 2003

... þetta er svo satt! uppskrift að jólum!!!!

"2 bollar af ást (fyrir alla).
2 bollar af trausti (milli ástvina).
4 bollar af tíma, næði og ró.
4 bolli umhyggja (fyrir þeim okkar sem eru einmana, sorgmædd og sjúk).
4 dl. húmor (til að brosa að óréttlæti og spillingu samfélagsins okkar )
175 g mjúk vinátta (tölum saman um það sem skiftir máli)
1 1/2 dl. fyrirgefning, gefin og þegin (byrjum á okkur sjálfum)
3 stórar matskeiðar af virðingu (fyrir okkur sjálfum og öðrum).
2 tsk. gagnkvæmur skilningur (á því hvernig öðrum líður í ástvinahópnum)
2 tsk jákveðni
Stór slatti af hrósi (sérstaklega ef við höfum ekki hrósað hvort öðru
lengi)
AÐFERÐ:

Hrærið öllu varlega saman í góðri skál. Skálin er það umhverfi sem þið hafið búið ykkur og það rúm sem þið gefið hvort öðru í lífinu. Ætlið ykkur góðan tíma því annars er hætta á að eitthvað af þurrefnunum gleymist eða hlaupi í kekki. Farið varlega með að bæta áfengi í uppskriftina. Best er að sleppa því alveg. Hellið í fat eða ílát sem ykkur þykir öllum vænt um. Bakist í vinalegu umhverfi og eins lengi og þurfa þykir. Hægt er að krydda og skreyta kökuna allt eftir smekk . Það breytir ekki sjálfri kökunni, en útkoman verður skemmtilegri og persónulegri. Ekki skaðar krem með tilbreytingu að eigin vali. Munið að tala saman um baksturinn, því annars brennur allt við í ofninum.

Berist fram í tíma og ótíma við ljós Jesú Krists, og með bros á vör"

posted by xxx @ 21:32 

..for helvede man! Ég ætlaði að vera svo dugleg að læra þangað til ég færi til Ísland... ein og yfirgefin i Århus. Og en sá litli þarna uppi er búin að taka öll völd og farinn að sofa. Hérna sit ég og fokkings horfi á bækurnar. ... jæja ætla að reyna að vekja greyið.. djö&%$#"!!Ö=))((/&%$$$¤¤=

posted by xxx @ 19:22 

fimmtudagur, desember 18, 2003

Ég fór í klippingu og plokkun í dag! Það er ekki hægt að lýsa því hversu mikið ég þurfti á því að halda. Kominn frumskógur á báða staðina!!! Keypti nokkrar jólagjafir .. núna á eg bara pabba eftir held ég. Ég gerði mjög heiðarlega tilraun til að kaupa jólagjafir með Guðnýju (hinni) síðustu helgi það gekk öðruvísi en ég bjóst við!! Ég keypti jólagjafir handa mér. En það verður maður jú stundum að gera ;) Var samt mjög huggulegt. Enduðum með öl í hönd á Hollywood.

Núna hlakka ég rosalega til að koma heim og hitta alla... alla sem ég hef ekki hitt svo lengi. Bölva í hljóði yfir því að hafa ekki pantað flugfar fyrr.. en jú svona er það. Ætli það sé ekki best að reyna að vera sem duglegust þangað til!!

posted by xxx @ 22:37 

Fakta Eitt
Ég er komin í jólafrí
Fakta Tvö
Ég kem til Íslands eftir 3 daga
Fakta Þrjú
Arnar kemur að sækja mig og ég hlakka svo til
Fakta Fjögur
Ég ætla að gista hjá Kristínu Kötlu og það verður BEST
Fakta Fimm
Svo fer ég til Húsavíkur
Fakta Sex
og held jól!




Jólakortin verða skrifuð á næsta ári.... þið verðið að afsaka það.. mér þykir það leitt :(

posted by xxx @ 22:32 

föstudagur, desember 12, 2003

Dilja, heimilisfangið mitt á Húsavík er Brávellir 9, 640 Húsavík!

posted by xxx @ 21:12 

fimmtudagur, desember 11, 2003

posted by xxx @ 20:48 

Afhverju ... er ég ekki búin að vaska upp í þessari viku?? Ekkert til í ísskápnum?? Óhrein föt út um allt gólf?? Geisladiskar út um allt .. og ekki í hulstrunum?? Bein á tvist og bast?? .. ekkert skipulag á skrifborðinu?? Öll blómin mín dauð?? Hálfkláraðar vatnsflöskur og glös í öllum hornum??....... þvottkortið týnt og ég hef ekki þvegið þvott í 2 vikur (já nú er illt í efni)... hvað ég nenni EKKI að búa með sjálfri mér. Verður gott að komast í smá jólafrí frá þessu eftir rúma viku.. komast heim í ömmu matinn og fjölskyldulífið. Hulda hlýtur að hafa haft einhver gríðarlega "kvenleg" áhrif á mig þegar við bjuggum saman (hún var allavega alltaf karlmaðurinn á heimilinu og ég konan. Hún sá um timburmennina um helgar og uppvaskið... ég um matinn og ryksuguna kl 8 á sunnudagsmorgni eftir partý... hm.já kannski ekki alveg orðin edrú ef ég á að vera heinskilin.)!!! Ég lifi þessu hrikalega piparsveinalífi hérna í Danmörku...Hulda ég sakna þín!

posted by xxx @ 20:46 


Find your inner Smurf!


..hm.. þetta á að vera eg. Jæja..læri læri læri

posted by xxx @ 19:18 

miðvikudagur, desember 10, 2003

Testis my ass!! Eg rokka! I morgun stod eg fyrir framan bekkinn minn og røfladi a dønsku um uppbyggingu eistna og sædisfrumna. Eg er ad segja tad ad vid Lena ROKKUDUM:) Kennarinn sagdi yfir bekkin eftir fyrirlesturinn ad tad hefdi ekki verid hægt ad gera tetta betur og ad hann gæti ekki spurt okkur ad neinu tvi vid hefdum sagt allt... og .. vid tyrftum ekki ad vita svona mikid fyrir prof. ..... svo høfum vid verid ad fa hros fra krøkkunum ur bekknum i allan dag. Gegt anægd med tad tvi eg vaknadi kl 6 i morgun til ad fara yfir sidustu detailin. Gudnyju (hinni) fannst ad eg ætti ad fara i bio i gærkvøldi.. svo eg for i bio med henni, Ingibørgu, Betu og Helga a myndina "Love actually".. love is all around. ... sætasta mynd ever. Eg kom ut med sælubros. .. og i ogguponsulitlu jolaskapi...

posted by xxx @ 18:16 

þriðjudagur, desember 09, 2003

Elsku litla sæta Lena lesfelaginn minn hefur komid okkur tveimur i alveg magnada adstødu. A morgun a eg ad gjøra svo vel ad standa fyrir framan bekkinn og segja fra kynfærum karlmanna. .. alveg draumurinn. Eg gæti nu svo sem sagt eitt og annad ;)... tad er ekki tad!!! En jams en tad er ekki alveg svo gott heldur .. hormonar.. eistu... tubuli seminaferi concorti... tubulus recti... habloide celler... sertoli celler... og ekki spyrja mig um islensku heitin hef ekki fokk hugmynd um hvad tetta heitir a islensku. Og omægod, eg a dønsku fyrir framan bekkinn minn! Eitthvad er tad ekki ad virka :( Takk Lena , eg elska tig!!

posted by xxx @ 17:27 

þriðjudagur, desember 02, 2003

Lögbrjótur í Danmörku

Hvað rugl var nú þetta! Var að labba í strætó eftir að hafa massað þessar síður í Viktor Albeck. Ákvað að málið væri að fá sér kvöldgöngu fyrir svefninn svo ég labbaði fram hjá fyrstu stoppistöðinni til að húkka strætóinn á þeirri næstu. Gott mál! Ég rölti í hægðum mínum (...uh... hægðum... segir maður það?) yfir fyrstu gatnamótin á rauði ljósi eins og heiðvirtum íslendingi sæmir (að sjálfsögðu... kl 22 á þriðjudagskvöldi þegar ekki einn einasti bíll(eða svo gott svo sem) er sjáanlegur. .. og fæ þessu hrikalegu blikkandi ljós á mig!!! .. "Du kunne godt se at lyset er rødt, ikke?". Jo... det kunne jeg.. "Du ved jo godt at man går ikke over gaden når lyset er rødt".. jo ..det ved jed .. eh, det er rigtig .. " ellers bliver kørt over dig".. uh, ja .. det er jo det... det ved jeg...

HAHAHAHA! ... ég þorði ekki að fara yfir á rauði á næstu ljósum. Ég er lögbrjótur í Danmörku!

posted by xxx @ 22:33 

Eg held ad mer hafi adeins tekist ad hrista vid jolastelpunni inni i mer i gærkvøldi. Eg og nokkrar stelpur ur bekknum hittumst og bordudum sjavarrettasupu, hlustudum a jolaløg og bjuggum til tetta gomsæta jolakonfekt. A eftir fengum vid æbleskiver (sem eru eitthvad jolatraditional herna i dk... en eru samt sem adur engar eplaskifur heldur einhverji braudboltar med forsykri og sulut!!!) og jolaøl ;) Søng jolaløg a leidinni heim. Og herna sit eg i Viktor Albeck nykomin ur krufningu... borda tetta blessada jolakonfekt mitt (sem er kvøldmaturinn) og les tær 40 sidur sem eg a eftir ad lesa fyrir morgundaginn!
Mig dreymdi einn steikstasta draum sem mig hefur dreymt i langan tima i nott. Tad var gømul kona, hun Bjarney sem hafdi drukknad i Budaranni... eda Botnsvatni a Husavk. Og eg atti ad hjalpa henni ad finna .. tann sem drekkti henni og læti..... eg er ad verda ruglud. Eg held ad krufningin se ekki ad fara nogu vel i mig.

PÙFF, jæja.. . tre kopper kaffe og så i gang med at læse! Høres.

posted by xxx @ 17:18