föstudagur, september 28, 2007

Rangur félagsskapur?

Moi: Ég er að hugsa um að taka kandidatsárið á Íslandi

B: Já, er það?

Moi: Já... og kaupa mér íbúð eða eitthvað. Þá get ég borgað af henni þangað til ég þarf að flytja aftur út í sérfræðinám og leigt hana svo út á meðan

A: Afhverju viltu gera það?

Moi: Til að gera eitthvað fullorðins. Axla einhverja ábyrgð?

B: Ég keypti íbúð fyrir nokkrum árum og ég er ekki orðin fullorðnari. Núna leigi ég hana út svo ég þurfi ekki að hafa áhyggjur af henni og bý hérna á kollegíinu.

A: Guðný þú þarft ekkert að fýta þér að verða fullorðin, það er nægur tími til þess.

Svo skrapp ég með vinkonu minni í bíó og kom heim fyrir klukkustund. Þá standa A og B ásamt fleiri læknanemum fyrir utan kollegíið og eru í drykkjukeppni/boðhlaupi. Reglurnar: Þú keyrir í hjólastólnum að stiku (appelsínugul umferðastika sem þau höfðu stolið einhvers staðar niðri í bæ) drekkur stóran sopa af Jâgermeister, hleypur 10 hringi kringum stikuna, tekur annan sopa af Jâgermeister og keyrir í hjólastólnum sömu leið til baka.

Rangur félagsskapur? Maður spyr sig...

posted by xxx @ 00:00 

fimmtudagur, september 20, 2007

Já eða...??

Las þessa frétt á visi.is áðan, nokkuð skondin en það er jú spurning hversu réttlætanleg þessi lagasetning er.. hm! Eru 7 ára hjónabönd málið?

Nei nei, við giftum okkur ekki TIL að skilja! Alveg skiljanleg rök svo sem. Jájá.

En svo rökin á móti; Við fæðumst heldur ekki TIL að deyja (svo við reynum nú að vera öörlítið róttæk). Heldur til að áorka allt sem við getum í millitíðinni. Það er að minnsta kosti mín skoðun. Dauðinn er aftur á móti óumflýjanlegur. Dauði er í raun afleiðing fæðingar þegar til lengri tíma er litið. Ef við fæddumst ekki, myndum við ekki deyja. Við myndum ekki deyja ef við fæddumst ekki. Bleh!

Hvað með samfélagið eins og það er í dag. Getum við sagt það sama um giftingar og skilnaði? Nú man ég ekki alveg tölurnar, en er ekki talað um að yfir helmingur hjónabanda endi með skilnaði?

Já og hvernig er þetta þegar fólk strengir heit á brúðkaupsdaginn? Mig minnir að eitt loforðið sé "fullt af fallegum orðum"... og svo í lokin .."until death do us apart". Já, sem sagt þangað til dauðinn aðskilur okkur. Spurning um að breyta þessu í.."þangað til skilnaður aðskilur okkur". Þá er ekki verið að lofa of miklu! Þá eru loforðin ekki innantómt þvaður.





Bara pælingar meðan ég les háls, nef&eyru. Sýnir hversu einbeitt ég er :)
Og bæ ðe vei. Pæliði í því. Sérhæfður læknir í þessu fagi er háls, nef og eyrnalæknir á Íslandi. Hefð fyrir því að raða orðunum á þennan hátt. En hérna á bauninni heitir þetta víst Øre-næse-hals. Æji núna er ég komin út í tóma vitleysu. Ætli ég sé ekki búin að lesa titilinn á bókinni of oft, best að byrja á innihaldinu.

Well, back to business.
***Guðný sem ætlar kannski að gifta sig einhvern tímann, þá hugsanlega ekki TIL að skilja ;)

posted by xxx @ 15:50 

mánudagur, september 17, 2007

Nogle gange er jeg en kylling

Mér finnst tíminn fljúúúga áfram. Allt í einu eru fjórða vikan í kúrsunum sem ég er í að byrja og ég þarf að fara að gera eitthvað af viti. Og hana nú. Óþolandi samt þegar mér finnst ég standa við hliðina á mér og segja við sjálfa mig; Jæja Guðný núna ætlar þú að vera dugleg. Og ennþá meira óþolandi finnst mér þegar ég sé sjálfa mig kinka kolli og líta í hina áttina. Stundum þarf ég að eiga í svolitlum rökræðum við sjálfa mig til að koma mér af stað. Stundum þarf ég líka að rífast við sjálfa mig.

Annars keypti ég flugmiða til Bangkok á sl föstudag.
Eins og málin standa í dag mun ég fljúga frá Kastrup til Moskvu þann 30.nóv og sama dag frá Moskvu til Bangkok með næturflugi. Þar á ég pantaðar tvær nætur á hóteli svona rétt til að jafna mig eftir flugferðina. 3.des mun ég svo leggja af stað í tæplega mánaðarferð með hóp af backpackers þar sem við munum eyða tæpum 2 vikum í Kambódíu og svo tæpum tveimur í Víetnam. Jólin held ég þess vegna einhvers staðar í miðri Víetnam og áramótin í Ha Noi. Eftir þetta á ég tæpan mánuð eftir sem ég er ekkert búin að skipuleggja. Möguleiki að eyða aðeins meiri tíma í Víetnam, fara um Laos og skella sér svo til Thailands en mig langar mikið að taka köfun þar. Ég á pantað flug heim til DK 27.jan svo ég hef nægan tíma til að gera það sem mig langar til. Afmælið mitt verður því haldið einhvers staðar í Thailandi, líklega við að redda síðustu hlutunum í Bangkok áður en ég þarf að fara út á flugvöll.

Svo núna er mikið af praktískum hlutum sem þarf að gera. Aðallega koma mér í bólusetningar og sækja um landvistarleyfin. Hinu get ég í raun reddað þegar ég er búin í prófunum því ég geri ráð fyrir að ég eigi viku fría áður en ég leggíann.

Fyrst af öllu þarf ég auðvitað að lesa fyrir og ná þessum prófum. Já, án þeirra fer ég ekki langt.Þannig að ég þarf að fara að spýta í lófana.

Annars var helgin ágæt. Fór í afmæli hjá Kjetil á fös og endaði í Jomfru Ane Gade sem var svo sem ágætt. Er samt sem áður búin að fá nóg af svona djammi í bili. Langar einhvern veginn að vera að gera allt aðra hluti núna. Ætli sumarið hafi ekki verið tíminn í það og sumarið er búið:) Í hvert skipti sem ég fer í bæinn þessa dagana stend ég mig að því að líta á klukkuna einum of oft. Hahaha, eins og það sé ekki löglegt að fara snemma heim. Þannig að í staðinn fyrir að eyða laugardeginum í einhverja vitleysu skráði ég mig á FADL vaktir og tók kvöldvakt laugardag og dag/kvöldvakt sunnudag á neurokirurgi deildinni hérna á sjúkrahúsinu. Nokkuð sátt við það.

Jæja...

Mér er mjög illa við þessi flugslys sem hafa verið í fréttum undanfarið og brá heldur betur í brún þegar ég las um þetta flugslys í Thailandi um helgina. Tæplega 90 manns létust, stór hluti ferðamenn. Úps. Ekki að það hefði verið skárra ef þetta hefðu verið heimamenn, alls ekki! Þið megið ekki misskilja mig. Ég er mjög flughrædd manneskja svo þetta er ekki til að bæta á það. Fjölskyldan mín er heldur ekki sérlega hrifin af þessari glæfraför minni. En þetta er eitthvað sem mig hefur alltaf langað að gera og ég læt ekki einhverja flughræðslu stoppa mig. Loka augunum, spennig beltið og vona að ég komist á leiðarenda. Enda gerist það í flestum tilfellum!

Fór í morgun og lét einkaþjálfara gera fyrir mig prógramm í Equinox svo núna ætla ég að fara að taka á því. Finna mér aðeins háleitari markmið en bjórþamb hverja einustu helgi. Koma mér í form fyrir bakpokann, já og bara fyrir sjálfa mig. Þarf bara hreinlega á því að halda og held að ég hafi voðalega gott af því.

Já...og hef ég eitthvað meira að segja? Já ég kveikti næstum í eldhúsinu í dag. Just for your information :) Það fer ekki alltaf saman að hafa þörf fyrir að gera marga hluti í einu og vera utan við sig í þokkabót. Sniðugt að brenna hálft sjúkrahúsið hérna í Álaborg niður til kaaaaaldra koooola? Neibb. Ekki sniðugt sko. Ég var að elda mér kvöldmat, kjúkling í ofninum og á meðan sat ég inni hjá mér að lesa. Anton bankaði upp á hjá mér og þá var þykkur reykmökkur í eldhúsinu. Þá var víst einhver plata í ofninum sem hafði ekki verið þrifin og var víst að brenna. Ég hafði ekkert kíkt inni í ofninn, bara hent kjúklingnum mínum inn. Já, Guðný þarf að læra að líta aðeins í kringum sig. Það er lærdómur dagsins í dag.

Og setning dagsins í dag er líka ágæt
"Hey Gudny, jeg skal i bad..vil du med?"
Ég: "Nej, ellers tak"
"Oh Gudny nogle gange er du en kælling...nej undskyld jeg mente kylling"

Ég veit svei mér þá ekki hvort er betra..eða verra ef út í það er farið: Kelling eða kjúklingur (sem mig grunar að hafi átt að þýða skræfa).

Ætil ég hafi eitthvað meira að segja? Neh, held barasta ekki. Svo ég bið að heilsa í bili.



Knús

posted by xxx @ 21:44 

sunnudagur, september 09, 2007

Á ég ad slá tig í hausinn??

*Skrádi mig í Equinox og er farin ad leggja í vana minn ad svitna eins og selur tar. Svei mér hressandi-og svo styrki ég íslenska framleidslu í leidinni. Ekki slæmt tad. Ákvedinn fjølskyldumedlimur tjádi mér tad í sumar ad ég væri ordin FEIT!! Já tad gengur ekki.

*Villtist inn í karlaklefann um daginn. Eins og vanalega lít ég hvorki til hægri né vinstri. Ég er eins og forrystugeit med ipodinn minn í eyrunum, nidursokkin í eigin hugsanir. Allt í einu stód ég fyrir framan hálfnakinn karlmann (hvad eeeeer tetta med mig og tessa nøktu karlmenn sídustu daga, ekki eins og ég sé ad fá nokkurn sakpadan hlut út úr tvi. Látidi mig vera!) sem stamadi tví út úr sér ad ég væri ad villast á klefa. Ég stardi eins og asni og leit furdulostin í kringum mig. Fannst ekki passa ad ég væri á røngum stad;) Svo ég spurdi á móti hvort hann væri ekki bara í vitlausum klefa og krosslagdi hendur. Hah! Nei tá hafdi Equinoxlidid svissad klefunum. Átædan er mér enn hulin rádgáta. Ég tritladi tví yfir í fyrrverandi karlaklefann og afklæddist. Var daudhrædd um ad tad væri búid ad svissa klefum aftur tegar ég var búin ad æfa. Núna passa ég mig alltaf á ad lesa øll skilti. Madur veit ekki hvad tetta lid tekur upp a næst!

*Ég fékk ad vita í sumar af persónu sem ég kynntist ad ég væri gædd miklu og oft á tídum of miklu keppnisskapi. Mér hefur aldrei fundist tad sjálfri. Stód hins vegar sjálfa mig ad verki í dag tegar ég var í sumarbústad med Lena,Lene,Birgitte,Signe og Louise í KROCKET. Fann hvernig blódtrystingurinn hækkadi og hvad ég vard pirrud tegar hlutirnir voru ekki ad ganga. Ádur en ég vissi af var ég farin ad hrópa ókvædisord og hóta øllu illu. "Altsååå det dér gør du bare ikke mod mig! For satan man, skal jeg slå dig i hovedet?? Nej? Jamen så ødelægger jeg din cykel!! Haha, se! Nu kan du ikke cykle hjem! Tænk dig lige om næste gang du slår min kugle væk" Kommon! Krocket!! Einhverjar hormónabreytingar med aldrinum? Meira testosteron?
Alltaf verid blódheit og skapmikil en hingad til talid mig hafa nokkud háan trøskuld.

*Og talandi um ad vera í sumarbústad med vinkonum! Tær eru algjørlega ordnar handónýtar. Ég er ordin sú eina sem drekk raudvín med matnum og helli Baleys í kaffid. Hef samt sem ádur alltaf tá afsøkun ad ég er yngst. Tegar madur er ungur og vitlaus má madur allt. Tá má madur líka vera ógiftur og barnlaus. Ég held ad ég sé farin ad teljast til sjaldgæfrar dýrategundar. Tad fer allavega ad koma ad tví. Vei fyrir mér.

*Tók næturvakt á føstudagsnótt. Ágætt ad eignast pening. Tókst ad líta adeins á bæklinga og ferdir medan sjúklingurinn svaf. Ohhh hlakka svo til. Drífa mig nidur á ferdaskrifstofu á tridjudaginn og kaupa ferdina. Ohhh hlakka enntá meira til!

*Ég er í heimsókn í Árósum núna. Arnar kallinn yfirgaf herbergid sitt svo ég gæti sofid í rúminu hans. Ég er sem sagt í gømlu íbúdinni minni og leigandinn minn er í herberginu vid hlidina á mér. Stórskrítid ad vera gestur innan um eigin hluti :)

Írena mín til hamingju med afmælid!!! Sendi tér afmæliskvedju yfir símann á eftir. Og Harpa frækna fænka, til hamingju líka. Fáid bádar stórt, stórt knús frá mér.

Og Gardar. Búin ad adda tér. Heyri í tér vid tækifæri.

Og Snorri. Var bara ad lesa kommentid frá tér. Já tad hefid verid gaman ad hitta á tig. Kannski gengur tad betur upp næst :)

Jæja... nite nite

posted by xxx @ 22:21 

miðvikudagur, september 05, 2007

Back in Dene

Yes sir. Þá er ég lent og dönum gefin. Á móti mér tók nakinn karlmaður og bjór. Ekki slæmt (tja.. of gott til að vera satt? Haha..nei í mínu tilfelli of satt til að vera gott :/!). Komst með mest allt draslið mitt yfir hafið án sjáanlegrar yfirvigtar. Faldi auka tuttugu kíló vel og vandlega í handfarangri með hjálp pabba sem stóð í þaulútreiknaðri fjarlægð meðan ég tjekkaði mig inn. Tók lestina til Aarhus þar sem ég bætti enn á farangurinn og náði í hjólið mitt. Svo hélt ég í norður og niður til Aalborgar með farangur sem ég enn er ekki farin að skilja hvernig ég komst með á leiðarenda. Úff. Klapp fyrir mér *klapp,*klapp!

Fyrstu vikunni eyddi ég á vaktherbergi á norður-skjúkrahúsinu með flóm og flóabitum. Fyrsta daginn tókst mér líka að læsa mig úti. Ekki gaman. En hvað um það. Því næst flutti ég yfir á suður-sjúkrahúsið þar sem mér líður miklu betur. Að vísu er það líka gamalt vaktherbergi en með því að skella nokkrum myndum á veggina, styttum í hyllurnar og kertum í gluggakistuna tókst mér að gera þetta sæmilega vistlegt. Home sweet Guðný. Fyrsta morguninn var ég vakin af tveimur mismunandi aðilum til að ég svæfi örugglega ekki yfir mig. Like an one big family. Örugglega fínt næstu 2 til 3 mánuðina, svo ekki meir ;) Er vonandi að fara eiga við allt allt allt aðra hluti þá!

Annars er ekkert að frétta. Barasta ekki neitt. Voða hress og kát þessa dagana. Ef ég á að líkja lífinu mínu við sjúkling sem er manio-depressiv var sumarið mitt manía og ég vona innilega að komandi vetur verði það líka. Ef það er mögulegt.

posted by xxx @ 22:07