föstudagur, janúar 28, 2005

Deitmenning

Í dag var ég að labba niður strikið. Förinni var heitið í bóksölu læknanema að versla inn bækur fyrir komandi önn. Allt í einu kemur maður á harðahlaupum á eftir mér (en ég fór mjög hratt yfir) og þegar ég leit á hann þekkti ég andlit sem ég hafði séð bregða fyrir í skyndi mínútu áður. Hann pikkaði í mig og spurði mig hvort hann mætti ekki bjóða mér í kaffi við tækifæri. Mér brá svolítið enda ekki vön að ókunnugt fólk sé að bjóða mér á deit á miðju strikinu. Að lokum stundi ég upp ... "nej det tror jeg ikke, jeg har nemlig en kæreste". Örugglega mest notaða lygi í heimi þegar fólk þarf að redda sér út úr svona aðstæðum. Einhvern veginn fannst mér ég ekki geta sagt bara nei.

Svo varð mér hugsað til mismunandi deitmenninga. Danir eru svipaðir og íslendingar. Fólk hittist á djamminu eða kynnist við aðrar aðstæður gegnum sameiginlega vini, í skólanum, í vinnunni. Enginn vogar sér að bregða sér upp að ókunnugri konu eða karlmanni á förnum vegi og bjóða viðkomandi út með sér. Sú manneskja yrði álitin eitthvað skrítin. Kannski er það vegna þess að á Íslandi er samfélagið svo lítið. Sömu andlitin sjást aftur og aftur. Fólk býður á deit ef það hefur sést á djamminu og ef til vill eitthvað gerst þar.

Ég bjó í Bandaríkjunum (New York) á tímabili þegar ég var enn ung og sæt. Þar var ég alltaf að lenda í því að ég var stoppuð og spurð um símanúmer. Þar er samfélagið líka miklu miklu stærra. Þú sérð andlit en svo hverfur það í fjöldann og hugsanlega sérðu það aldrei nokkurn tímann aftur.

Annars hef ég aldrei verið hrifin af deitum... Þegar maður á að vera að spila út sínum bestu spilum. Kann það ekki. Lít alltaf út eins og fífl og er feimin. Klaufsk. Hef aldrei neitt að segja. Enda líka ekki í þjálfun. Kannski er þetta einhver kúnst. Eitthvað sem hægt er að læra.. rétt eins og að daðra. ;)

posted by xxx @ 19:49 

miðvikudagur, janúar 26, 2005

Ammli

Já svei mér þá ef ég er ekki orðin 23 ára núna. Þvílíkt út úr kú og ekki í samræmi við minn þroska. Jeij! En hvað um það. Takk krúttin mín fyrir þau 23 ár sem ég hef fengið að eiga með ykkur eða hluta úr þessum 23 árum. : )

posted by xxx @ 01:42 

mánudagur, janúar 24, 2005

Dottið út

Já elskurnar mínar. Núna mér búið að takast að laga þetta he####is kommentakerfi. Öll góðu kommentin ykkar eru dottin út. Desværre. En það koma víst fleiri blogg eftir þetta blogg...

posted by xxx @ 18:55 

sunnudagur, janúar 23, 2005

Þynnka þynnkudóttir

Nú er mál að taka sig aðeins saman í andlitinu eftir þessa djammseríu.Þetta er orðið ansi gott. Íslenski læknahittingurinn í gær tókst vel og ég skemmti mér mjög vel. Bjórarnir urðu aðeins of margir. Fulla Guðný endaði á social club með Evu Björk. Er orðin svolítið sjúskuð eftir þessa helgi, whiskyröddin farin að segja til sín og svona. Finnst ég hafa misst kúlið soldið niður um mig síðustu daga.Það er víst lítið annað hægt að gera í stöðunni en að vera bein í baki og láta eins og sér sé skítsama.
Ég meina hvað er meira töff en að sitja á Ris ras að naglalakka lykkjufall á sokkabuxunum sínum? ..sem samt verður stærra og stærra..og stærra OG miklu stærra. (skítanettósokkabuxur)
Já eða að detta á dansgólfinu? ...hm hreinlega að DÚNDRAST í gólfið
...já eða að kaupa sér bjór og missa hann í gólfið (mölbrjóta glasið)....tvisvar. Æji alkahólið átti nú svo sem betur heima á gólfinu en í blóðinu á mér.
Svo er assgoti töff að tárast yfir því að klinikin hafi ekki verið eins spennandi og ég hafði búist við að hún yrði.
Ég hef örugglega verið mest töff gellan á svæðinu. Jájá.
Læf gós on.

posted by xxx @ 16:26 

laugardagur, janúar 22, 2005

...bakverkur

Fimmtudagurinn var kúl. Kom fúl og leiðinleg úr klinik en Dilja esskan bjargaði deginum með því að bjóða mér í mat og íslenskt Idol. Eftir alla þessa hygge hygge endaði ég á social club með Katrine og Miu. Þurfti ekki meira en eitt sms til. Arnar ruddist svo inn í tilveruna mína í gær. Við byrjuðum á því að fara í jysk (rúmfatalagerinn) og fengum kaupæði þar. Við fórum sem sagt þaðan út með tvo fulla ruslaboka sem innihéldu sængur, kodda, rúmföt og svefnpoka. Þarna keypti ég mína fyrstu gestasæng. Hún heitir Arnar. Stolt yfir þeim kaupum. Eftir að Arnar hafði eldað og við borðað hentumst við út á banegården til að ná sjöunni því ferðinni var heitið á Børglum kollegiet til Möggu og Evu. Okkur tókst ekki betur til en svo að við hoppuðum inn í sexuna og rúntuðum um í Risskov. Fórum með henni út á endastöð og til baka aftur. Stálum glösum í seven eleven og blöndudum okkur mojita í strætóskýlinu meðan við gerðum aðra tilraun til að ná sjöunni. Sem tókst ;) Áttum gott kvöld með Möggu og Evu. Hrundum í gólfið á social club... (er ekki að fatta afhverju ég enda alltaf þar, þetta er eiginlega stærri útgáfa og solon) og hér sit ég með bakverki og tilheyrandi. Læknahittingur í kvöld... höres.

posted by xxx @ 13:27 

miðvikudagur, janúar 19, 2005

Já...plön breytast

Á hverri nýrri önn finnst mér lífið byrja upp á nýtt. Ég set mér ný markmið og set mér ýmsar reglur. Mér tekst að fara eftir sumum, öðrum ekki. Núna er aðeins einn dagur eftir af klinikinni og svo fæ ég viku frí. Þetta frí mitt er alveg óráðið. Hef hugsað mér að taka kannski nokkar a vaktir til að vinna mér inn pening. Sjáum hvað letin segir.Gæti endað með tærnar upp í loft þess vegna. Nú svo á ég afmæli í þessari fríviku, sem sagt á miðvikudaginn. Þá verð ég 23 ára. 23 ára og singúl. Skrítið að hugsa til þess að þegar ég var pínulítil skutla á Brávöllunum sagði ég við ömmu og mömmu að ég ætlaði að eignast 10 börn og það fyrsta ætlaði ég að eignast þegar ég væri 16 ára(snarhætti nú við það þegar ég varð aðeins eldri og komst að því hvernig börn yrðu til...þá fór ég að tala um ættleiðingu). Ég sagði við ömmu að ég ætlaði að verða bóndakona og ég myndi aldrei giftast neinum sem vildi ekki flytja með mér í sveitina. Ömmu varð um og ó og ég man eftir því að hún sagði við mig að það ætti ég nú ekki að verða. Ég ætti frekar að halda áfram í skóla og læra eitthvað meira spennandi. Ég skildi alls ekkert í því að amma væri að segja þetta. Hún var/er jú bóndakona og ég var handviss um að það væri það skemmtilegasta í heimi. Tímarnir hafa svei mér þá breyst :)Ég ætla ekki að verða bóndakona, og ég sé mig fyrir mig í borg í framtíðinni, að minnsta kosta í einhverju sæmilega stóru bæjarsamfélagi. Á stað þar sem maður þekkir ekki endilega nágrannann sinn og veit ekki hvað Sigga á Sólavallargötunni var að borða í kvöldmat. Þar að auki er ég ekki að fara að eignast börn í nánustu framtíð og hvað þá nokkurn tímann tíu stykki. Ég fæ hroll þegar ég heyri barnsgrát nálægt mér. Finnst voða gott að vera með frændsystkini mín...en líka voða þægilegt að skila þeim af mér aftur. Þykir vænt um þessi litlu kríli. Eins og stendur veit ég ekkert hvar eða hvernig ég enda og sú tilfinning finnst mér bara nokkuð góð. Ekkert planlagt. Það er ég þessa stundina. Ég er enn að gera sömu skandalana aftur og aftur og aftur. Ég er enn að læra af mistökum. Ég er enn að pirra mig á því hvað það tekur mig langan tíma. Oft fæ ég nóg af því hversu oft ég geri eitthvað þvert ofan í það sem ég var búin að ákveða. Ég á fullt í fangi með að halda kúlinu! Og stundum finnst mér það alveg hrunið. En þá kemur nýr dagur með nýjum tækifærum. Og þannig geng ég inn í tuttugasta og fjórða aldursárið á miðvikudaginni. Lengi lifi lífið.

posted by xxx @ 20:26 

sunnudagur, janúar 16, 2005

Kokteilkvöld

Minns er þunnur. Við stelpurnar í matarklúbbnum hittumst í gærkvöldi. Við erum 7 og hver okkar átti að koma með eina týpu af kokteil. Ég gerði Mojhito sem tókst þrusuvel. Svo sátum við, borðuðum sushi og drukkum kokteila. Leið svona "Sex and the city"lega. Eftir mikið slaður enduðum við svo á social club. Dansi,dansi.Endaði kvöldið svo fallega með því að gleyma jakkanum mínum á staðnum. Eins og alltaf. Ekkert að bregða út af vananum. Ég get ímyndað mér að það sé leiðinlegt að sitja í partýi með eintómum læknanemum því lítið annað er rætt en það sem er að gerast hjá okkur í praktíkinni, líffæri og þess háttar. Í gærkvöldi fengum við þá hugmynd að gera profæl a dating.dk (samsvarar til einkamal.is á Íslandi)þar sem við lýstum kostum líffæranna okkar ... æji mjög intern djókur en að þessu gátum við hlegið í klukkutíma. Hæ ég heiti Guðný og hef alveg einstaklega fallega gallblöðru....

Þá er að hvíla vöðvana (sem ég hef alveg ógrynni af) í nótt og safna kröftum svo ég geti borið alla kassana hennar Ástu á morgun en gellan er að flytja frá Skjoldhøjkollegiet á annað kollegi nálægt háskólanum. Hresst.

posted by xxx @ 01:05 

miðvikudagur, janúar 12, 2005

Ég og Nick Cave, like this...

Nú hef ég átt í stormasömu tónlistarsambandi við Nick Cave í 6 ár. Þetta byrjaði ágætlega hjá okkur á sínum tíma þegar ég var 16 ára gömul og að uppgötva hann fyrst. Hlustaði svona á hann með öðru eyranu og raulaði með. Eins og ég geri yfirleitt í samböndum mínum við aðra tónlistarmenn. Svo þegar ég var rétt skriðin yfir átjánda aldursárið hitti ég strák. Samband mitt við hann þróaðist og leiddi í allt aðra átt en það sem ég átti með Nick Cave. Við getum kallað það ástarsamband. Ég varð rosa skotin og áður en ég vissi af var hann orðinn kærastinn minn. Ég dansaði á rósum og bleikum skýjum í þrjá mánuði. Þessi strákur kenndi mér að meta Nick Cave á annan hátt. Hann hafði það fyrir vana að sofna út frá diskunum hans og ég vandist á það líka. Fór að gefa textunum meiri gaum. Svo gerðist það eins og þruma úr heiðskýru lofti að strákurinn dömpaði mér. Jájá, bara rétt sísvona. Rétt eins og gerist í samböndum. Þau geta liðið undir lok jafnsnögglega og þau byrja. Komst aldrei almennilega að því afhverju en fékk þó margar ástæður sem mér fannst ekki alveg nógu trúverðugar. En svona er það einmitt oft þegar dump á sér stað. Ömurlegur fjandi. Og oft er ekkert betra að vita ástæðurnar. En það sem verra var, er að þarna tók samband mitt við Nick Cave líka stakkaskiptum. Ég var brjáluð út í hann. Já, brjáluð! Ég tengdi þessa tvo karlmenn við þunglyndi og grét í viku. Grét og grét og grét. Já, svona eins og maður gerir þegar maður er í ástarsorg. Eftir viku með hor í nös og tár í augunum ákvað ég að nú væri nóg komið og pakkaði öllu niður sem tilheyrði þessum tveimur gaurum. Lét það allt saman hverfa. Fannst ekki rétt að láta svona stutt samband skemma fyrir mér lengri tíma. Og þar með var Nick Cave úr sögunni, gleymdur og grafinn í 3 1/2 ár ásamt þessum fyrrverandi kærasta mínum. Undanfarnar vikur hef ég verið að uppgötva Nick Cave aftur og farin að geta hlustað á tónlistina hans. Sem er svooo góð. Ég hef sem sagt endurheimt Nick Cave úr heljum meðan kærastinn fyrrverandi er grafinn á sínum stað.

Svona er þetta með mig og mín tónlistarsambönd. Þegar ég er að takast á við slæmt tímabil í lífinu sem allir gera jú öðru hverju legg ég í vana minn að kaupa mér 2 geisladiska. Þá hlusta ég svo á meðan þetta tímabil er að líða hjá og þegar ég sé ljósið í myrkrinu pakka ég þeim niður. Eins og til merkis um að þetta tímabil sé liðið og ég geti farið að takast á við aðra hluti. ..svo er aldrei að vita nema ég uppgötvi tónlistina aftur síðar en þá á öðrum forsendum.

Það tímabil sem ég er að fara í gegnum núna hefur kostað mig tvö sett af geisladiskum og ég er að fara að kaupa mér það þriðja. Já..er þetta mistnotkun á tónlist eða hvað? ..

posted by xxx @ 01:09 

þriðjudagur, janúar 11, 2005

Ekki tölvunördið ég...

Núna er ekki tölvunördið ég búin að vinna baki brotnu að því að laga kommentakerfið á þessu blessaða bloggi. Fékk þessa fallegu orðsendingu frá honum Andra Birgis í gestabókina um að ég þyrfti eitthvað að gera í málunum. Svo versgú og guði sé lof fyrir þriðju önn...þar sem nákvæmlega ekkert er að gerast :) Og kommentiði nú börnin mín.

posted by xxx @ 20:45 

sunnudagur, janúar 09, 2005

Söfnun fyrir fórnarlömb flóða

Í dag hef ég fylgst með söfnununni sem fer fram hérna í DK fyrir fórnarlömb flóðanna í Thailandi. Síðustu tölur sýna að 189 dönskum milljónum hefur verið safnað. Enginn "Kristjáns Jóhannssonar"bragur á því : ) Þar er fólk að GEFA sína vinnu.

posted by xxx @ 01:40 

mánudagur, janúar 03, 2005

Afhverju er svona vont veður?

Þá er maður komin í borg óttans. Klöngraðist inn á Bollagötuna til Huldu, Kristínar Péturs og Arnars um 23 í miklu sjokki eftir lendinguna hérna á Reykjavíkurflugvelli. Já! Gráti næst alveg hreint. Svaðilfarir dagsins voru ekki af verri endanum. Víkurskarðið var talið ófært svo pabbi sendi okkur brósa með rútunni til Akureyrar.. bara eins og hverja aðra böggla ;) Með frímerki á rassinum. Rútan fór kl 13:30 og því vorum við komin út á flugvöll kl 15:00. Flugið okkar var fyrst kl 20:50 í kvöld og allar vélar smekkfullar. Ekki séns að smeygja sér í flugvélarnar á undan ... en það reyndi ég og reyndi. Þegar það var fullreynt var ég orðin nokkuð pirruð. Þá birtist þessi líka engill, Ásta dóttir Magga kenn og bauð okkur systkinunum heim meðan við vorum að bíða eftir flugi en synir Krissu systur hennar voru líka að bíða eftir flugi. Þeir höfðu misst af fluginu um morguninn vegna ófærðar. Nú svo ég brosti út að eyrum aftur. Kella töfraði fram bakkelsi og með því. Og dýrindis fiskirétt aður en við fórum á flugvöllinn aftur. Flugferðin sjálf gekk nokkuð ok en ég svaf mest alla leiðina..enda hafði ég ekkert sofið um nóttina(vegna óútskýranlegra orsaka..damdammdammdamm) en lendingin var hell. Flugvélin hoppaði og skoppaði í loftinu og fólk var farið að taka andköf. Ég svitnaði af skelfingu þegar EXIT ljósin kviknuðu og við vorum enn í loftinu...yfir sjónum. Var farin að grípa í Gumma sem sat hin rólegasti ...fannst þetta hið eðlilegasta mál en hann hefur ekki flogið innanlands áður. Ég get sagt ykkur það að ég vil frekar deyja í sprenginu þegar flugvélin lendir á þurru landi en að drukkna þegar hún krassar í sjó. Ekkert hálfkák hvað dauða minn varðar. En við lentum og ég er enn á lífi. Sit hérna við eldhúsborðið á Bollagötunni eftir 4 tíma svefn og kl er að verða 6. Veit ekki hvað er að svefnklukkunni minni...ég er hætt að sofa!

posted by xxx @ 06:41