On the klake
..sama simanr og alltaf! posted by xxx @ 20:48
þriðjudagur, júní 20, 2006
algkh
Tad er próf ekki á morgun, heldur hinn. Og ég er ekkert stressud. Eda svo ad segja. Samt kann ég ekki shit og er enn ad slá upp í øllum bókum. Get ekki lært tessar 130 litlu lífverur utan ad. En mér er einhvern veginn alveg sama. Samt er tetta ógislea spennandi. Hins vegar finnst mér svolítid annad meira spennandi. Ég er ad komast í sumafrí. Vonandi næ ég tessu bara. Gódi Gud, leyfdu mér ad ná. Hlakka svooo til! Arnar kíkti í heimsókn til mín hérna á medicinerhuset i gærdag med ís handa mér. Ég var ekkert smá ánægd. Sagdi vid alla ad Arnar hefdi komid med bjór. Sem hann hafdi jú ekki gert. Tetta rann eitthvad til í hausnum á mér. Is og øl eru ekki einu sinni lík ord. Stórfurdulegt. Ég er med bjór á heilanum. Opna bjór eftir prófid á fimmtudaginn. Annad hvort til ad drekkja sorgum eda ad djamma. Nei.. djamma sama hvad gerist. Buin ad lesa nogu mikid í tad minnsta svo ég á allavega skilid ad ná, annars er ekkert réttlæti til. Svo rann upp fyrir mér í gærkvøldi medan ég var ad glíma vid Treplonema pallidum ad ég flýg til Íslands á tridjudaginn. Veit ekki hvort tad er tad sem ég hlakka til eda hvad er málid. Er allavega med bullandi fidrildi í maganum. Kannski er tad bara løngunin í tad ad gera eitthvad annad en ad grúska í bókum sem veldur tessum hamskiptum hjá mér. Búin ad fá nóg. posted by xxx @ 13:56
föstudagur, júní 09, 2006
Long time, no blog!
Próflestur þessa dagana. Ætla mér að ná þessu prófi og fara svo í langþráð sumarfrí. Bara tvær vikur eftir. Hversdagsleikinn (hah!) er sem sagt fylltur upp af bókum. Bækur um alls konar bakteríur og vírusa, einstaka orma og blóðsugur. Allt mjög spennandi. Hulunni svipt af alls konar sjúkdómum. Loksins veit ég afhverju!! "Afhverju" er nefnilega orð sem bergmálar ótt og títt í hausnum á mér. Ég var einstaklega óþolandi barn ;)
En já Berglind!! Til hamingju með afmælið í dag. Orðin 24 ára. Ég mæti hress og kát í brúðkaupið þitt 12.ágúst. Jafnvel þó að þú hræðir mig aðeins. Fyrsta barnaskólavinkona mín sem giftir sig!
Til hamingju með afmælid á morgun Heiða!
Og Mira!Hlakka til að fara á ströndina með þér þegar ég er búin í prófi. Búin að panta 27 stiga hita þá daga sem ég verð hérna áður en ég fer til Íslands.
Jóna og Þórdís..já og Berglind, þú spurðir víst líka! Ég lendi á Íslandi þann 27.júní. Flýg frá Kastrup til Akureyrar. Beint á norðurland. Er meira að segja farin að hlakka svolítið til. Á síðasta ári var ég í allt 10 daga á Íslandi. Og jú kíkti nú aðeins við í janúar á þessu ári. Ég hef ekki verið að ráði á Íslandi í 2 ár. Verð í rúma 2 mánuði. Á samt eftir að sakna margs héðan. 2 mánuðir er langur tími þegar maður skilur eftir uppáhaldsknúsið sitt.
Jæja. Spáð 27 stiga hita um helgina. Sem þýðir að ég get notið góða veðursins í hádegispásunni, kaffipásunni og í kvöldmatnum. Og ef mér skilst rétt þá ætlum við að halda íspásu á morgun. Hlutir sem gera hversdagsgrámann aaaaðeins litríkari á þessum síðustu og verstu tímum, rétt fyrir sumarfrí. posted by xxx @ 21:54
